FRESTAÐ: Afrískir bíódagar: Félicité (2017)
Veröld - Hús Vigdísar
fyrirlestrasalur
Afrískir bíódagar: Félicité (2017)
Veröld - hús Vigdísar, 18. mars kl. 18:30
Leikstjóri: Alain Gomis (Kongó).
Sýningartími: 123 m
Sýnishorn úr myndinni: https://www.youtube.com/watch?v=6g92y5oRJ9Y
Enskur texti
Aðgangur ókeypis
Myndin segir sögu Félicité, söngkonu í Kinshasa. Hún býr ein með Samo, sextán ára syni sínum. Dag nokkurn lendir hann í slysi á mótorhjóli. Til þess að bjarga honum frá því að missa annan fótinn endasendist hún í örvæntingu um borgina, og um fortíð sína og drauma. Til að afla nauðsynlegs fjár fyrir aðgerðinni leitar hún til fyrrum kunningja sem taka henni vægast sagt fálega. Hvernig þeir bregðast við varpar ljósi á ástandið í Kongó nútímans, sem er bæði flókið og mótsagnakennt.
Myndin var heimsfrumsýnd í opinbera valinu á Berlínarhátíðinni 2017 og vann þar dómaraverðlaunin.
Myndin er á frönsku og lingala en sýnd með enskum texta, með stuðningi Institut Français.
Í tengslum við Hátíð franskrar tungu munu franska sendiráðið, Alliance Française í Reykjavík og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur kynna þrjár afrískar stórmyndir sem gerast á okkar dögum.
Félicité (2017)