Skip to main content

Er meistararitgerð handan hornsins?

Er meistararitgerð handan hornsins? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. október 2019 15:30 til 16:10
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

H-203

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Komdu og fáðu hugmyndir að efni, kynnstu viðurkenningum Reykjavíkurborgar fyrir framúrskarandi meistaraverkefni og fáðu að vita allt um nýja menntastefnu borgarinnar Látum draumana rætast! 

 Renata Emilsson Pesková verkefnastjóri meistaranáms og Randi W. Stebbins forstöðumaður Ritvers Menntavísindasviðs kynna hugmyndabanka um meistaraverkefni og svara spurningum um ferli lokaverkefna og ráðgjöf sem meistaranemum stendur til boða. 

Fríða Bjarney Jónsdóttir, deildarstjóri Nýsköpunarmiðju Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar kynnir Menntastefnu borgarinnar og hugmyndir að lokaverkefnum tengdar innleiðingu hennar. Fríða Bjarney kynnir einnig viðurkenningar borgarinnar fyrir framúrskarandi lokaritgerðir. 

Vínber og súkkulaði í boði! Verið öll hjartanlega velkomin!

Renata Emilsson Peskova verkefnastjóri meistaranáms við Menntavísindasvið kynnir upplýsingaveitur og hugmyndir að spennandi viðfangsefnum meistaraverkefna. Kynning á Menntastefnu Reykjavíkurborgar „Látum draumana rætast" og á viðurkenningum fyrir framúrskarandi meistaraverkefni.  Fundarstjóri: Oddný Sturludóttir

Framúrskarandi meistaraverkefni og gildi þeirra fyrir skóla- og frístundastarf