Fræðamót. Söfn og loftslagsbreytingar
Þjóðminjasafn Íslands og Háskóli Íslands kynna Fræðamót, sem haldið verður miðvikudaginn 25. nóvember 2020 kl. 11.00-16.30. Á málþinginu verður sjónum beint að áhrifum loftlagsbreytinga á safnastarf og þeim áskorunum og tækifærum sem söfn standa frammi fyrir tengdum þessari yfirvofandi vá. Rætt verður hvernig söfn geti tekist á við samfélagslega kröfu um aukna sjálfbærni og jafnframt stuðlað að upplýstri umræðu um loftlagsbreytingar og afleiðingar þeirra. Málþingið fer að þessu sinni fram gegnum fundarkerfið Teams, en hægt er að taka þátt og hlusta á fyrirlestra með því að smella hér. Gestir eru beðnir um að stilla hljóðnema sína á hljóðlaust.
Dagskrá / Program
11.00-11.05: Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður
11.05-11.15: Ávarp. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
11.15-12.30: Nordiska Museet: The Artic – While the Ice is Melting. Sanne Houby-Nielsen safnstjóri og Lotten Gustafsson Reinius rannsóknarstjóri, Norræna safnið í Stokkhólmi.
12.30-13.00: Hádegi
13.00-13.25: Náttúrufræðisöfn og loftslagsbreytingar: Áskoranir, tækifæri og skyldur. Hilmar Malmquist, forstöðumaður Náttúruminjasafn Íslands
13.30-13.55: Vegvísir: Handbók um aðgerðir í loftslagsmálum fyrir söfn, setur og sýningar. Bergsveinn Þórsson, nýdoktor í safnafræðum frá Oslo University
14:00-14.25: Sjálfbærni: lærdómur af torfhúsum. Sigurjón B. Hafsteinsson og Tinna Grétarsdóttir
Kaffihlé / Kaffe / Coffee
14.40-15.05: Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Samvinna OECD og ICOM um mikilvægi safna. Guðný Dóra Gestsdóttir, safnstjóri Gljúfrasteins og formaður Íslandsdeildar ICOM
15.10-15.35: Salthúsið, endurnýting og sjálfbærni. Aníta Elefsen, safnstjóri Síldarminjasafnsins
15.40-16.05: Solstalgia: Viðbættur sýndarveruleiki. Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands
16.05-16:20: Umræður og spurningar
16.20-16.30: Þakkir og lokaorð. Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður
Fundarstjórn: Heiða Björk Árnadóttir