Skip to main content

Febrúarbrautskráning Háskóla Íslands 2018

Febrúarbrautskráning Háskóla Íslands 2018 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. febrúar 2018 13:00 til 15:00
Hvar 

Háskólabíó

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Febrúarbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer fram í Háskólabíói laugardaginn 24. febrúar nk. kl. 13. Kandídatar fá þá afhent prófskírteini sín við hátíðlega athöfn.

Kandídötum er ætlað afmarkað svæði og eru beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 12. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.

Prófskírteini verða afhent í röð eftir fræðasviðum:

  • Félagsvísindasvið
  • Heilbrigðisvísindasvið
  • Hugvísindasvið
  • Menntavísindasvið
  • Verkfræði- og náttúruvísindasvið.

Kandídatar fá rafræn bréf með nánari upplýsingum.

Beint streymi frá athöfninni:

Febrúarbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer fram í Háskólabíói laugardaginn 24. febrúar nk. kl. 13.

Febrúarbrautskráning Háskóla Íslands 2018