Erasmus+ ferða- og dvalarstyrkir fyrir starfsfólk HÍ
Á netinu
Fulltrúar frá Skrifstofu alþjóðasamskipta kynna möguleika á Erasmus+ styrkjum til kennara- og starfsmannaskipta. Farið verður yfir skilyrði fyrir styrk, umsóknarferlið og spurningum svarað. Kynningin verður á ensku.
Þá verður fjallað um þann möguleika deilda HÍ að bjóða til sín fulltrúum fyrirtækja, stofnana eða félagasamtaka í öðrum þátttökulöndum Erasmus+ til að sinna gestakennslu.
Einnig verða möguleikar í Erasmus+ kennara- og starfsmannaskiptum utan Evrópu kynntir.
Hægt verður að bóka viðtal við fulltrúa Skrifstofu alþjóðasamskipta í gegnum Teams fyrir þá sem vilja frekari upplýsingar eða ráðgjöf.
Þeir sem hafa áhuga á ferða- og dvalarstyrkjum innan Evrópu hafi samband við Áslaugu Jónsdóttur (aslaugj@hi.is) til að setja upp fund.
Þeir sem hafa áhuga á ferða- og dvalarstyrkjum utan Evrópu hafi samband við Nönnu Teitsdóttur (nannateits@hi.is) til að setja upp fund.
Erasmus+ styrkir til kennara- og starfsmannaskipta innan Evrópu https://www.hi.is/nam/erasmus_styrkir_innan_evropu
Erasmus+ kennara- og starfsmannaskipti utan Evrópu https://www.hi.is/nam/erasmus_styrkir_utan_evropu
Hægt verður að bóka viðtal við fulltrúa Skrifstofu alþjóðasamskipta í gegnum Teams fyrir þá sem vilja frekari upplýsingar eða ráðgjöf.