Skip to main content

Eldfjallaganga í Búrfellsgjá - Með fróðleik í fararnesti

Eldfjallaganga í Búrfellsgjá - Með fróðleik í fararnesti - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. mars 2019 10:00 til 13:00
Hvar 

Bílastæðið við Vífilsstaði

Nánar 
Brottför: Kl. 10 á einkabílum frá bílastæðinu við Vífilsstaði. Ekið í halarófu inn í Heiðmörk.

Snæbjörn Guðmundsson, doktorsnemi í jarðfræði við Háskóla Íslands, mun leiða göngu um Búrfellsgjá að gígnum Búrfelli. Við ætlum að fræðast um ýmis jarðfræðileg fyrirbrigði svo sem eldgos og velta fyrir okkur hvernig ýmis fyrirbæri urðu til. Gangan tekur um þrjár klst.

Muna að klæða sig vel, í góðum skóm með gott nesti.

Gangan er hluti af samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands: Með fróðleik í fararnesti. Þúsundir Íslendinga á öllum aldri hafa notið þess að halda í göngur með Háskóla Íslands og Ferðafélagi Íslands undanfarin ár og þegið fróðleik í fararnesti frá vísindamönnum og sérfræðingum Háskólans við nánast hvert fótmál. Göngurnar hafa löngu unnið sér fastan sess en með þeim er aukið við þekkingu fólks, ekki síst ungmenna, á sama tíma og boðið er upp á holla og skemmtilega hreyfingu.

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Ekkert að panta, bara mæta.

Snæbjörn Guðmundsson, doktorsnemi í jarðfræði við Háskóla Íslands, mun leiða göngu um Búrfellsgjá að gígnum Búrfelli. Við ætlum að fræðast um ýmis jarðfræðileg fyrirbrigði svo sem eldgos og velta fyrir okkur hvernig ýmis fyrirbæri urðu til.

Eldfjallaganga í Búrfellsgjá - Með fróðleik í fararnesti