Skip to main content

Eðli, gildi og hlutverk útimenntunar á Íslandi

Eðli, gildi og hlutverk útimenntunar á Íslandi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. september 2019 14:00 til 15:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

K 204

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þriðjudaginn 17, september nk. mun fara fram mat á doktorsverkefni Jakobs Frímanns Þorsteinssonar doktorsnema við Menntavísindasvið. Heiti verkefnisins er:

Fararheill: Eðli, gildi og hlutverk útimenntunar á Íslandi

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Jakob Frímann rannsóknarskýrslu sína í stofu K 204 kl. 14:00 – 15:00 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsmönnum Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Jakobs Frímanns. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.

Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.

Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum Jakobs Frímanns Þorsteinssonar, þeim: dr. Jóni Torfa Jónassyni, prófessor emerítus, Háskóla Íslands, meðleiðbeinanda dr. Gunnar Þór Jóhannessyni prófessor, Háskóla Íslands; utanaðkomandi prófdómurum, Dr. Beth Christie dósent, University of Edinburgh,  Dr. Patrick T. Maher, dósent, Cape Breton University Canada.

Atli V. Harðarsson er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sólrún B. Kristinsdóttir er ritari.