Dönsk-íslensk hönnun - málþing og sýning
Veröld - Hús Vigdísar
Fyrirlestrarsalur
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum stendur fyrir málþingi og sýningu á dansk-íslenskri hönnun í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands, í samvinnu við Epal og sendiráð Dana á Íslandi. Viðburðurinn er hluti af dagskrá aldarafmælis fullveldis Íslands og styrktur af afmælisnefnd og danska menningarmálaráðuneytinu.
Dagskrá málþings:
14.00-14.05 Auður Hauksdóttir, prófessor í dönsku: Ávarp
14.05-14.15 Eva Egesborg Hansen, sendiherra Dana: Setning
14.15-14.30 Kristján Garðarsson arkitekt: Dönsk hönnun í Veröld – húsi Vigdísar
14.30-15.00 Hans Henrik Sørensen, stjórnarformaður Onecollection: Finn Juhl og hans møbler – en glædesrejse.
15.00-15.30 Æsa Sigurjónsdóttir, dósent í listfræði: Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl – hugarflug milli höggmyndar og hönnunar.
15.30-16.00 Léttar veitingar í boði sendiráðs Dana á Íslandi
16.00-16.30 Arndís Árnadóttir hönnunarsagnfræðingur: Sveinn Kjarval og tengsl hans við danska hönnun
16.30-16.55 Hee Welling og Guðmundur Lúðvík Grétarsson arkitektar hjá Welling/Ludvik: Dansk-islandsk møbeldesign.
16.55-17.25 Sigurður Einarsson, arkitekt: Dönsk-íslensk hönnun og samvinna um tónlistarhúsið Hörpu.
Þátttakendum gefst tækifæri til að skoða hönnunarmuni í Veröld – húsi Vigdísar, m.a. húsgögn hönnuð af Finn Juhl og stóla Sveins Kjarvals. Auk þess verður komið upp lítilli sýningu á munum eftir danska og íslenska hönnuði.
Dönsk-íslensk hönnun - málþing og sýning