Skip to main content

Doktorsvörn í líf- og læknavísindum - Atli Ágústsson

Doktorsvörn í líf- og læknavísindum - Atli Ágústsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. apríl 2019 13:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Miðvikudaginn 24. apríl ver Atli Ágústsson doktorsritgerð sína í líf- og læknavísindum við Læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Stöðustjórnun - Mat á líkamsstöðu.  Postural management – Assessment of posture

Andmælendur eru dr. Hans Tropp, prófessor við Háskólasjúkrahúsið í Linköping, og dr. Jens Bo Nielsen, prófessor við Háskólann í Kaupmannahöfn. 

Umsjónarkennari var dr. Þórarinn Sveinsson, prófessor við Námsbraut í sjúkraþjálfun við Læknadeild, og leiðbeinandi var dr. Elisabet Rodby Bousquet, dósent við Háskólann í Lundi. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd þau dr. Magnús K. Gíslason, dósent við Háskólann í Reykjavík, Pauline M. Pope sjúkraþjálfari og dr. Páll E. Ingvarsson, klínískur dósent við Landspítala.

Dr. Kristín Briem, prófessor við Námsbraut í sjúkraþjálfun við Læknadeild, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.

Ágrip af rannsókn

Fatlaðir fullorðnir einstaklingar með litla sem enga hreyfigetu, eru margir hverjir með miklar líkamlegar aflaganir. Stöðustjórnun er hugmyndafræði sem byggir á hugmyndum um að samhverfa í líkamsstöðu stöðvi eða seinki aflögun líkamans. Markmið ritgerðarinnar er að skapa grunn-matstækni, til að hægt sé að afla gagnreyndrar þekkingar á sviði stöðustjórnunar hjá fötluðum einstaklingum. Ritgerðin skiptist í tvo hluta. Annars vegar mat á réttmæti og áreiðanleika tveggja matstækja til að meta líkamsstöðu á hlutlægan hátt og hins vegar mat á tengslum þess að vera lengi í ósamhverfum líkamsstellingum, þess að vera með lélega stjórn á líkamshreyfingum og  vera með aflagaðan líkama. Ritgerðin er byggð á fjórum vísindagreinum sem allar hafa birst í alþjóðlegum vísindatímaritum. Bæði matstækin sýndu fram á réttmæti og áreiðanleika. Einstaklingar með ósamhverfar skerðingar á mjaðmabeygju sýndu aukin líkindi til að vera með skakka mjaðmagrind og ósamhverfan bol, aukin líkindi til að vera með hryggskekkju og vindblásnar mjaðmir samanborið við einstaklinga sem voru með samhverfa mjaðmabeygju. Einstaklingar sem ekki geta hreyft sig í liggjandi stöðu af eigin rammleik, sýndu aukin líkindi á að vera með hryggskekkju og vindblásnar mjaðmir, borið saman við þá sem geta hreyft sig í rúmi. Hið sama á við um þá sem ekki geta rétt úr hnjám, þeir sýndu aukin líkindi á að vera með hryggskekkju og vindblásnar mjaðmir, miðað við þá sem geta rétt úr hnjám. Baklega jók líkindi á að vera með vindblásnar mjaðmir á meðan þeir sem dvöldu lengi í rúmlegu, voru með aukin líkindi á að vera með hryggskekkju. Niðurstöður á réttmæti og áreiðanleika matstækjanna gefa skýrt til kynna að þau henti vel í klínísku umhverfi. Ósamhverfar vanastellingar, ásamt því að dvelja lengi í sömu líkamsstöðu, auka líkindin á aflöguðum líkama.

Abstract

Adult individuals with disability and low motor function frequently have body deformations, such as scoliosis and windswept hips. Posture management is a component of physical management, which aims to prevent or reduce the development of a deformed body shape by maintaining a symmetrical posture. The purpose of this thesis is to establish valid and reliable methods of gathering evidence for postural management. This thesis is divided into two parts. The first focuses on the development of two tools to quantify posture, and the second focuses on the association between an asymmetrical posture, low postural ability and deformity. Four scientific peer reviewed papers are included in the thesis. Both posture evaluation tools (PPAS and a 3-D camera mounted on an iPad) were found to be reliable and valid. Individuals with asymmetrical limited hip flexion showed higher odds for developing an oblique pelvis and an asymmetrical trunk, scoliosis and windswept hips, than those who had symmetrical hip flexion. Individuals who were unable to straighten their knees had higher odds of developing scoliosis and windswept hips compared with those who could do so. It was the same for those who were immobile when lying down; the odds of developing windswept hips and scoliosis increased. Similarly, lying only in the supine position increased the odds of having windswept hips and lying for long periods of time in bed increased the odds of having scoliosis. Current publications on reliability and validity indicate clearly that both postural evaluation tools are suitable for use in clinical practise. Asymmetrical posture along with spending a long time in the same posture, increases the odds of developing a deformity among adults with CP.

Um doktorsefnið

Atli Ágústsson er fæddur árið 1969. Hann lauk BS-prófi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1995 og meistaragráðu í heilbrigðisverkfræði frá University of Strathclyde árið 2002. Atli hefur samhliða doktorsnámi unnið sem sjúkraþjálfari og heilbrigðisverkfræðingur hjá Endurhæfingu – Þekkingarsetri, ásamt því að vera ráðgjafi um setstöður í hjólastólum og um óhefðbundna stjórn tölva hjá hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga Íslands. Atli er giftur Bryndísi Dagsdóttur og eiga þau tvö uppkomin börn.

Atli Ágústsson ver doktorsritgerð sína í líf- og læknavísindum við Læknadeild Háskóla Íslands miðvikudaginn 24. apríl kl. 13:00

Doktorsvörn í líf- og læknavísindum - Atli Ágústsson