Skip to main content

Danska nýbylgjan - Málþing

Danska nýbylgjan - Málþing - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. október 2018 14:00 til 18:00
Hvar 

Norræna húsið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og Norræna húsið efna til málþings um nýsköpun í danska kvikmyndageiranum í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands

Það vakti athygli þegar kvikmyndin „Vetrarbræður" eftir Hlyn Pálmason sópaði að sér öllum helstu verðlaunum í Danmörku fyrr á þessu ári: Níu Robert verðlaunum og tvennum Bodil verðlaunum. Kvikmyndin er styrkt af New Danish Screen (undirdeild Dönsku Kvikmyndamiðstöðvarinnar) sem hefur það hlutverk að þróa ungt hæfileikafólk og stuðla að nýsköpun í kvikmyndageiranum. 

Hjá New Danish Screen fær kvikmyndagerðarfólk tækifæri til að framleiða „low-budget“ kvikmyndir, þar sem fjárhagslegar takmarkanir eru ekki aðþrengjandi skilyrði, heldur aðferð til að hámarka sköpun og frelsi. Árangurinn hefur verið stórbrotinn og sjaldan hefur listræn gróska verið jafn mikil í danskri kvikmyndagerð og um þessar mundir. Hver kvikmyndin á fætur annarri hefur farið sigurför um heiminn og nýlega var „Den Skyldige" („The Guilty") valin sem framlag Danmerkur til Óskarsverðlaunanna. 

Á málþinginu gefst áhugasömum kostur á að kynnast þessu brautryðjendastarfi. Mette Damgaard-Sørensen, forstöðumaður New Danish Screen, mun halda erindi um hugmyndafræði og aðferðir sjóðsins og einnig munu leikstjórar og framleiðendur kvikmyndanna „Cutterhead" og „Neon Heart" fara ofan í saumana á þróun og framkvæmd verka sinna. Stjórnandi málþingsins er Dagur Kári, leikstjóri og handritshöfundur.

Samhliða málþinginu mun Bíó Paradís sýna umræddar kvikmyndir. 

Málþingið verður á ensku. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

Facebook viðburður HÉR

Danska nýbylgjan

Danska nýbylgjan - Málþing

Dagskrá

14:00 - 15:00
Mette Damgaard-Sørensen, framkvæmdastjóri New Danish Screen
15:00 - 15:15
Hlé
15:15 - 16:30
Cutterhead - Rasmus Kloster Bro, leikstjóri
16:30 - 16:45
Hlé
16:45 - 18:00
Neon Heart - Laurits Flensted, leikstjóri og Julie Walenciak, framleiðandi