COVID - 19 með augum félagsfræðinnar: Fjarfyrirlestur félagsfræðinnar á Zoom
Hvenær
3. júní 2020 12:00 til 13:00
Hvar
Nánar
Aðgangur ókeypis
Heimsfaraldurinn sem nú gengur yfir hefur haft mikil áhrif á samfélagið og allt okkar líf. Félagsfræðin býður upp á fjarfundaröð á zoom þar sem áhrif Kórónaveirunnar og Covid-19 eru greind út frá félagsfræðilegum kenningum og rannsóknum á málefnum eins og afbrotum, dægurmenningu, vinnuumhverfi, fjöldahegðun og heilsu.
Hér er tengill á Zoom fundarherbergið.
Dagskrá:
3. júní - Helgi Gunnlaugsson: Afbrot og kreppur: Aukast afbrot vegna snöggra samfélagsbreytinga?
5. júní - Guðbjörg Linda Rafnsdóttir: Þjóðfélagsbreytingar og líðan í Covid-19
8. júní - Jón Gunnar Bernburg: Fjöldahegðun í heimsfaraldri
10. júní - Ólöf Júlíusdóttir: Fjarvinna og samræming fjölskyldu- og atvinnulífs á fordæmalausum tímum
Félagsfræðin býður upp á fjarfundaröð á zoom