Bókakynning – útgáfuhóf: Á fjarlægum ströndum. Tengsl Spánar og Íslands í tímans rás
Hvenær
28. október 2021 17:00 til 18:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Nánar
Aðgangur ókeypis
Bókakynning – útgáfuhóf:
Á fjarlægum ströndum. Tengsl Spánar og Íslands í tímans rás
Auðarsal, Veröld – húsi Vigdísar, 28. október kl. 17.00-18.30
Á fjarlægum ströndum er safn greina eftir fjórtán höfunda sem allar snúast um samskiptasögu Íslands og Spánar. Víða er komið við og má finna margt forvitnilegt sem hefur tengt löndin allt fram á okkar daga. Í lok bókar eru minningarbrot Íslendinga sem hafa verið búsettir til lengri tíma á Spáni og Spánverja sem hafa búið á Íslandi. Ritstjórar bókarinnar eru Erla Erlendsdóttir og Kristín Guðrún Jónsdóttir.
Dagskrá:
- Höfundar kynna grein sína í stuttu máli og fulltrúar minningabrotanna koma fram. Hér má sjá nöfn höfunda og greinar þeirra.
- Þórarinn Sigurbergsson leikur á gítar
- Vigdísarstofnun veitir viðtöku á kvikmyndinni Draumurinn um veginn eftir Erlend Sveinsson
- Léttar veitingar í boði Kalla K. og Rolf Johansens & Company ehf.
Bókakynning – útgáfuhóf: Á fjarlægum ströndum. Tengsl Spánar og Íslands í tímans rás