Bjarnarmessa: 100 ár frá fæðingu Björns Þorsteinssonar sagnfræðings
Hvenær
20. mars 2018 16:30 til 18:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Fyrirlestrasalur (023)
Nánar
Aðgangur ókeypis
Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Sagnfræðingafélag Íslands og Sögufélagið efna til Bjarnarmessu í tilefni þess að öld er liðin frá fæðingu Björns Þorsteinssonar sagnfræðings.
Messan verður haldin í fyrirlestrasal (023) í Veröld - húsi Vigdísar Finnbogadóttur, þriðjudaginn 20. mars kl. 16:30-18:30.
Dagskrá:
- Þingsetning: Hrefna Róbertsdóttir, forseti Sögufélags.
- Kveðja frá Vigdísi Finnbogadóttur.
- Helgi Skúli Kjartansson: Eigi einhamur. Æviatriði Björns Þorsteinssonar.
- Sveinbjörn Rafnsson: Björn Þorsteinsson, íslenskur sagnfræðingur á 20. öld.
- Helgi Þorláksson: Félagsmálatröllið Björn Þorsteinsson.
- Guðmundur J. Guðmundsson: Í slóð Björns Þorsteinssonar.
- Hlé ca. kl. 17:20 í 20 mín. Léttar veitingar
- Björn Pálsson: Fræðari og félagi.
- Þórunn Valdimarsdóttir: Bjössi besta Buna.
- Ávarp: Valgerður Björnsdóttir
- Ávarp: Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
- Styrkveiting úr Sagnfræðisjóði dr. Björns Þorsteinssonar. Valgerður Björnsdóttir afhendir styrkinn.
- Þingslit: Anna Agnarsdóttir f.h. Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands
Kristín Svava Tómasdóttir, formaður Sagnfræðingafélags Íslands, er fundarstjóri.
Björn Þorsteinsson