Barnasáttmálinn í 30 ár - Morgunverðarfundur RannUng
Grand Hótel
Af því tilefni að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er 30 ára á þessu ári ætlum við hjá RannUng (Rannsóknarstofa í menntunarfræðum ungra barna við Háskóla Íslands) að halda morgunverðarfund þar sem dagskráin á að hverfast um réttindi barna á leikskólaaldri í ljósi barnasáttmálans.
Fundurinn verður haldinn á Grand Hóteli þann 6. maí og skipulögð er tveggja tíma dagskrá þar sem boðið er upp á morgunverð áður en dagskrá hefst.
Dagskrá:
8:30 Morgunverður
9:00 Fundur settur
Jóhanna Einarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ. Barnasáttmálinn: Hvaða þýðingu hefur hann fyrir leikskólastarf?
Michel Vandenbroek, prófessor við Ghent-háskóla í Belgíu. Preschool for all: a the right of the child or a duty to society?
Herdís Gunnlaugsdóttir og Salbjörg Júlía Þorsteinsdóttir, leikskólakennarar í leikskólanum Króki. Hvernig starfa leikskólar að Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna?
Umræður á borðum
Kynning á niðurstöðum umræðna og samantekt.
11:00 Fundi slitið
Fundarstjórar: Aðalheiður Stefánsdóttir, leikskólastjóri í Reynisholti og Þrúður Hjelm, skólastjóri í Krikaskóla.
Verð 5.500 kr. og er morgunverður frá kl. 8:30-9:00 innifalinn.