Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?
Norræna húsið
Ráðstefna á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands,
Norðurlanda í fókus og utanríkisráðuneytisins
Norræna húsinu, 18. apríl 2018
Pólitískt andrúmsloft alþjóðasamfélagsins hefur tekið stórfelldum breytingum síðastliðin misseri sem hefur áhrif á stöðu Íslands og þær áskoranir sem íslenskstjórnvöld standa frammi fyrir. Þetta kallar á stöðugt endurmat á hagsmunagæslu Íslands og hlutverki landsins á alþjóðavettvangi. Hvaða áhrif hefur breytt valdajafnvægi í heiminum á stöðu smáríkis í alþjóðakerfinu?
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Norðurlönd í fókus og utanríkisráðuneytið standa nú öðru sinni fyrir ráðstefnu síðasta vetrardag, miðvikudaginn 18. apríl í Norræna húsinu. Tilgangur ráðstefnunnar er að leiða saman sérfræðinga og fræðimenn, og ekki síst alla þá sem áhuga hafa á alþjóðamálum á Íslandi, til opinnar umræðu um helstu áskoranir og tækifæri Íslands í utanríkismálum.
Ráðstefnan samanstendur af nokkrum málstofum þar sem framsögumenn flytja áhugaverð erindi og í kjölfarið fara fram líflegar pallborðsumræður með valinkunnum gestum.
dagskrá má finna hér
skráning á www.ams.hi.is