Skip to main content

Allt sem við getum – ábyrg þátttaka í breyttum lífsháttum

Allt sem við getum – ábyrg þátttaka í breyttum lífsháttum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. janúar 2020 15:00 til 15:50
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Bratti

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Mannkynið stendur á tímamótum sem krefst þess að við endurhugsum lífshætti okkar og neyslu. Verkefnið er gríðarlega umfangsmikið og snertir allt okkar daglega líf. Það krefst þess að við skiptum um viðmið þegar við tökum bæði stórrar og smáar ákvarðanir. En hvernig getum við minnkað matarsóun og sýnt ábyrgari neysluhætti án þess að missa móðinn? Rakel Garðarsdóttir, forsvarskona samtakanna Vakandi, og Auður Pálsdóttir, lektor við Deild faggreinakennslu, munu ræða hvað við getum gert og hvernig, og taka dæmi um skrefin sem má taka bæði heima og í vinnu, en líka dæmi af vinnu með nemendum í skólum sem eflir þekkingu þeirra, þor og vilja til að breyta af skynsemi.

Loftslagshamfarir — hlutverk menntakerfisins er ný fyrirlestraröð sem hefur það markmið að veita nemendum og kennurum Háskólans og starfsfólki víðsvegar í menntakerfinu innblástur, skapa umræður og vera uppspretta lærdóms.

Fyrirlestrarnir munu fjalla um umhverfismál og menntun í víðum skilningi, matarsóun og ábyrga neysluhætti, stjórnkerfið, náttúruvernd og vistvæna framtíð, samtal kynslóðanna og samfélagslega þátttöku, áhrif loftslagsbreytinga á samfélög og afleiðingar þeirra.

Dagskráin er sem hér segir:

Fyrirlestrarnir eru haldnir að jafnaði á mánudögum frá kl. 15.00-15.50 í Bratta í húsnæði Háskóla Íslands í Stakkahlíð.

10. febrúar

Stjórnum við þróuninni? Sköpum vistvæna framtíð

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Helena Óladóttir, aðjunkt við Menntavísindasvið.

16. mars

Loftslagið og samtal kynslóðanna

Feðginin Eir Ólafsdóttir, framhaldsskólanemi við Menntaskólann í Hamrahlíð og hljómsveitarmeðlimur í Ateriu, og Ólafur Páll Jónsson, prófessor við Deild menntunar og margbreytileika.

 30. mars

Hvað getum við gert? Breytum til hins betra!

Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðingur og umsjónarmaður þáttanna Hvað höfum við gert? á RÚV, og Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda.

Menntavísindasvið Háskóla Íslands hrindir af stað nýrri fyrirlestraröð um loftslagshamfarir og hlutverk menntakerfisins. 

Allt sem við getum – ábyrg þátttaka í breyttum lífsháttum