Skip to main content

Afsakið ónæðið - tímabundin truflun í Listasafni Einars Jónssonar

Afsakið ónæðið - tímabundin truflun í Listasafni Einars Jónssonar  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. apríl 2019 17:00 til 19:00
Hvar 

Listasafn Einars Jónssonar

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Afsakið ónæðið – tímabundin truflun í Listasafni Einars Jónssonar er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands og Listasafns Einars Jónssonar. Nemendur í sýningarstjórnun og nemendur úr alþjóðlegu meistaranámi í myndlist sameinast og galdra fram listasýningu inn í fastasýningu safnsins. Sýningin verður opnuð laugardaginn 13. apríl kl. 17-19 en hún stendur til 28. apríl.

Einar Jónsson, sem var fyrsti myndhöggvari Íslands, bauð íslensku þjóðinni verk sín að gjöf árið 1909 með því skilyrði að byggt yrði safn til að hýsa þau. Safnið var opnað á Skólavörðuhæð árið 1923. Í byggingunni er safn verka hans varðveitt og þar var jafnframt vinnustofa og heimili þeirra Önnu Marie Mathilde.

Einar taldi listarinnar best notið í kyrrð, fjarri ágangi auglýsinga til að forðast það að hégómleiki ríkti fremur en listin og setti því skýrar reglur um umgengni og meðferð verka hans í safninu.

Með sýningunni er gert stutt hlé á viðvarandi aðstæðum safnsins í þeim tilgangi að sjá rýmið og verkin með öðrum augum og koma jafnvel auga á eitthvað sem var áður óséð. Tíu listamenn úr mismunandi áttum frá hinum ýmsu löndum munu tefla fram tíu ólíkum sjónarhornum á Einar Jónsson, verk hans og á sama tíma á safnið sem sýningarrými.

Sýningin stendur sem fyrr segir frá 13. apríl til 28. apríl og á meðan á sýningartímanum stendur verður listamannaspjall eftirfarandi laugardaga:

20/04/2019 14:00 – 15:30

27/04/2019 14:00 – 15:30

Listamenn: Nína Óskarsdóttir, Hugo LLanes, Jakob Nilsson, Pauline Brami, Guðrún Sigurðardóttir, María Sjöfn, Sísí Ingólfsdóttir, Mari Bø, Lukas Bury, og Sabine Adam Fischer.

Sýningarstjórar: Gundega Skela, Stefanía dóttir Páls, Guðrún Heiður Ísaksdóttir, Ólöf Bjarnadóttir, Aðalsteinn Benediktsson og Elísabet Jónsdóttir.

Afsakið ónæðið – tímabundin truflun í Listasafni Einars Jónssonar er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands og Listasafns Einars Jónssonar.

Afsakið ónæðið - tímabundin truflun í Listasafni Einars Jónssonar