FRESTAÐ: Afrískir bíódagar: Wulu (2016)
Veröld - Hús Vigdísar
fyrirlestrasalur
Afrískir bíódagar: Wulu (2016)
Veröld - hús Vigdísar, 25. mars kl. 18:30
Leikstjóri: Daouda Coulibaly (Mali)
Sýningartími: 95 m
Sýnishorn úr myndinni: https://www.youtube.com/watch?v=-rMqpjs5iNw
Enskur texti
Aðgangur ókeypis
Ladji, tvítugur að aldri, er reddari hjá skutlbílastöð. Yfirmaðurinn kann ekki að meta hann en hann vantar pening til að leysa systur sína úr vændi. Hann ákveður að tala við Driss, fíkniefnasala, og fá vinnu hjá honum. Hann fer að smygla fíkniefnum frá Malí til næstu landa og til eiturlyfja- og hryðjuverkahópa. Allt gengur honum í haginn og á vegi hans verður Assitan, en margt fer öðruvísi en ætlað er.
Myndin er á frönsku og bambara en sýnd með enskum texta með stuðningi Institut Français.
Í tengslum við Hátíð franskrar tungu munu franska sendiráðið, Alliance Française í Reykjavík og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur kynna þrjár afrískar stórmyndir sem gerast á okkar dögum.
Wulu (2016)