Skip to main content

Afrískir bíódagar: Timbúktú (2014)

Afrískir bíódagar: Timbúktú (2014) - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. mars 2020 18:30 til 20:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

fyrirlestrasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Afrískir bíódagar: Timbúktú (2014)
Veröld - hús Vigdísar, 11. mars kl. 18:30 
Leikstjóri: Abderrhamane Sissakó (Mauritanía)
Sýningartími: 97 m
Sýnishorn úr myndinni: https://www.youtube.com/watch?v=Cs2dYAlbINY
Enskur texti
Aðgangur ókeypis

Íslamistar ráðast inn í borgina Timbúktú og koma þar á sjaríalögum. Þeir banna tónlist, fótbolta, sígarettur, knýja fram nauðungarhjónabönd, ofsækja konur og koma á fót skyndidómstólum sem kveða upp rangláta og fáránlega dóma. Þótt þeir bæli niður af hörku alla andstöðu þá andæfir fólk þeim af miklu hugrekki, oft með vísun í annars konar skilning á íslam. Kidane er bóndi af þjóð Túarega og býr í eyðimörkinni með konu sinni og dóttur. Til að byrja með eru þau látin í friði en fyrr en varir standa þau frammi fyrir nýjum íslömskum lögum, eftir útistöður við annan íbúa.

Myndin hlaut dómaraverðlaunin í Cannes, Césarverðlaunin sem besta myndin og fyrir bestu leikstjórn og New York Times setti hana í 12. sæti yfir bestu kvikmyndir 21. aldar, það sem af er.

Myndin er á frönsku, bambara og tamasheq en sýnd með enskum texta, með stuðningi frá Institut Français.

Í tengslum við Hátíð franskrar tungu munu franska sendiráðið, Alliance Française í Reykjavík og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur kynna þrjár afrískar stórmyndir sem gerast á okkar dögum.

facebook

Timbuktu (2014)

Frönsk kvikmyndahátíð 2020: Timbúktú (2014)