Afmælismálþing til heiðurs Sigrúnu Aðalbjarnardóttur prófessor
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Skriða
Málþing til heiðurs Sigrúnu Aðalbjarnardóttur prófessor emeritus verður haldið fimmtudaginn 14. nóvember 2019, kl. 15.30 –18.00, í Skriðu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Stakkahlíð. Gengið er inn í bygginguna frá Háteigsvegi.
DAGSKRÁ
Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs, setur málþingið
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp
ERINDI
How to use developmental and educational science to build schools that nurture the flourishing of human goodness
Marvin W. Berkowitz, prófessor við University of Missouri
Valið er þitt! Áhersla samfélagsins á bóknám
Kristjana Stella Blöndal, dósent við Félagsvísindasvið HÍ
Hvar erum við? Hugleiðingar um sýnileika rannsakenda menntamála í samfélaginu
Jón Torfi Jónasson, prófessor emeritus við HÍ
Sjálfstjórnun og þýðing hennar fyrir þroska barna og ungmenna
Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslu og þróunar og prófessor við Heilbrigðisvísindasvið HÍ
Menntun fyrir lýðræðislega menningu
Ólafur Páll Jónsson, prófessor við Menntavísindasvið HÍ
Minningar úr grunnskóla
Nemendur Sigrúnar
Þátttaka ungs fólks í sjálfboðastarfi — leið til aukins þroska
Ragný Þóra Guðjohnsen, lektor við Menntavísindasvið HÍ
Hvernig má tryggja samráð við börn í íslenskri stjórnsýslu?
Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir, félagsfræðingur og MA nemi í opinberri stjórnsýslu við HÍ
Vinátta og samstarf
Samstarfsfélagar
Sigrún Aðalbjarnardóttir segir nokkur orð
Málþingsstjóri: Eyrún María Rúnarsdóttir, aðjunkt við Menntavísindasvið HÍ
Að málþingi loknu verður boðið upp á léttar veitingar
Afmælismálþing til heiðurs Sigrúnu Aðalbjarnardóttur prófessor Aðalerindi þingsins heldur Dr. Marvin W. Berkowitz, prófessor við University of Missouri í St. Louis. Fleiri fræðimenn munu jafnframt flytja erindi á sviðum sem tengjast rannsóknaráherslum Sigrúnar. Að málþinginu loknu verður boðið upp á léttar veitingar og vinir og samstarfsfólk Sigrúnar fagna með henni.