Skip to main content

Áfangamat Hervarar Ölmu Árnadóttur

Áfangamat Hervarar Ölmu Árnadóttur  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. október 2019 10:00 til 11:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

K 206

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heiti verkefnisins er:

Children in Care – Participation in Research

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Hervör Alma rannsóknarskýrslu sína í stofu K 206 kl. 10:00 – 11:00 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsmönnum Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Hervarar Ölmu. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.

Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.

Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum Hervarar Ölmu Árnadóttur, þeim: dr. Guðrúnu Kristinsdóttur, prófessor emeritus, Háskóla Íslands, meðleiðbeinanda dr. Sissel Seim prófessor emeritus Oslo Metropolitan University, Noregi; utanaðkomandi prófdómurum, dr. Tor Slettebø, prófessor VID, Vitenskapelig, Internasjonal og Diakonal, Noregi, dr. Sven Arild Vis, dósent, The Arctic University of Norway. Atli V. Harðarsson er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sólrún B. Kristinsdóttir er ritari.