Áfangamat Björns Rúnars Egilssonar
Stakkahlíð / Háteigsvegur
K 205
Föstudaginn 16, nóvember nk. mun fara fram mat á doktorsverkefni Björns Rúnars Egilssonar doktorsnema við Menntavísindasvið. Heiti verkefnisins er:
Fararheill: Viðhorf fjölskyldna með menningarlega og tungumálalega fjölbreyttan bakgrunn til flutnings úr leikskóla í grunnskóla.
Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Björn Rúnar rannsóknarskýrslu sína í stofu K 205 kl. 10:00 – 11:00 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsmönnum Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Björns Rúnars. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.
Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.
Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum Björns Rúnars Egilssonar, þeim: dr. Jóhönnu Einarsdóttur, prófessor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, meðleiðbeinanda dr. Sue Dockett prófessor í Charles Sturt University í Ástralíu; utanaðkomandi prófdómurum, dr. Michel Vandenbrocken, prófessor Gent University og dr. Hönnu Ragnarsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands. Dr. Gestur Guðmundsson er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sólrún B. Kristinsdóttir er ritari.