Skip to main content

Áfangamat Auðar Magndísar Auðardóttur

Áfangamat Auðar Magndísar Auðardóttur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. júní 2019 13:00 til 14:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

K 205

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Miðvikudaginn 3. júní n.k. mun fara fram áfangamatmat á rannsóknarverkefni Auðar Magndísar Auðardóttur doktorsnema við Menntavísindasvið. Heiti verkefnisins er

Processes of class reproduction through parental choices and practices within compulsory education in Iceland

Áfangamatið fer fram í tvennu lagi; fyrst kynnir Auður Magndís rannsóknarverkefni sitt í stofu K205 kl. 13.00 – 14.00 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsmönnum Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknaráætlunina við Auði Magndísi. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.

Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsókn sína og að veita endurgjöf svo að doktorsverkefnið verði svo gott sem verða má.

Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum Auðar Magndísar, þeim: dr. Berglindi Rós Magnúsdóttur, dósent, meðleiðbeinanda dr. Önnudís Grétu Rúdólfsdóttur, dósent, báðar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands; utanaðkomandi prófdómurum, dr. Elisabet Öhrn prófessor, University of Gothenburg, dr. Gunnlaugi Magnússyni, dósent, Uppsala University.  Dr. Gestur Guðmundsson, prófessor er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sólrún B. Kristinsdóttir er ritari.