Skip to main content

Áfangamat á Menntavísindasviði, Pascale Mompoint-Gaillard

Áfangamat á Menntavísindasviði, Pascale Mompoint-Gaillard - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. maí 2019 10:00 til 11:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

H 001

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þriðjudaginn 7. maí nk. mun fara fram mat á doktorsverkefni Pascale Mompoint-Gaillard doktorsnema við Menntavísindasvið. Heiti verkefnisins er:

Conversation as a learning ecology:

Designing online professional learning communities

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Pascale rannsóknarskýrslu sína í stofu H 001 kl. 10:00 – 11:00 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsmönnum Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Pascale. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.

Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.

Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum Pascale Mompoint-Gaillard, þeim: dr. Jóni Torfa Jónassyni, prófessor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, meðleiðbeinanda dr. Jacques Audran Framkvæmdastjóra du LISEC-Alsace; utanaðkomandi prófdómurum, Dr. Charles Crook Professor, Notthingham University, Dr. Hafdís Ingvarsdóttir Professor Emeritus at University of Iceland,, Dr. Gestur Guðmundsson er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni.