Skip to main content

Af hverju er Ísland útópía? Af viðhorfum til Íslands

Af hverju er Ísland útópía? Af viðhorfum til Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. mars 2021 12:00 til 12:30
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sumarliði R. Ísleifsson, lektor í sagnfræði við Háskóla Íslands, heldur fyrirlesturinn “Af hverju er Ísland útópía? Af viðhorfum til Íslands”. Fyrirlesturinn birtist á facebook síðu Vigdísarstofnunar þann 16. mars 2021.

Í erindinu verður unnið út frá þeirri tilgátu að „umheimurinn“ hafi um langt skeið litið á Ísland sem eins konar útópíu. Rök og gagnrök þessarar tilgátu verða rædd, rætur hugmyndarinnar kannaðar og leitast við að svara hvernig á þessu standi.

Sumarliði R. Ísleifsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita og bóka almenns eðlis árið 2020 fyrir bók sína "Í fjarska norðursins: Ísland og Grænland – viðhorfasaga í þúsund ár".

Þriðjudagsfyrirlestrar Vigdísarstofnunar

facebook viðburður

Af hverju er Ísland útópía? Af viðhorfum til Íslands

Af hverju er Ísland útópía? Af viðhorfum til Íslands