Skip to main content

Aðalfyrirlestur Menntakviku: Þroskaþjálfafræði á krossgötum — Gamlar og nýjar áskoranir

Aðalfyrirlestur Menntakviku: Þroskaþjálfafræði á krossgötum — Gamlar og nýjar áskoranir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
2. október 2020 12:30 til 13:30
Hvar 

Á netinu

Nánar 
Á netinu

Aðalfyrirlestur Menntakviku 2020 flytur Guðrún V. Stefánsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, á Alþjóðlegum degi þroskaþjálfa.

Til að mæta kröfum hvers tíma og þeirri öru þróun sem orðið hefur á hugmyndastraumum í málefnum fatlaðs fólks hefur menntun þroskaþjálfa tekið margvíslegum breytingum allt frá því að fyrstu nemendurnir útskrifuðust úr Gæslusystraskóla Íslands (síðar Þroskaþjálfaskóla Íslands) árið 1960 og fram til dagsins í dag. Oft hefur námið staðið á krossgötum, nú síðast þegar það var lengt úr þremur árum í fjögur en í aðdraganda þess fór fram mikil endurskoðun á náminu sem enn stendur yfir. Frá upphafi hafa farið fram líflegar umræður og skoðanaskipti um nám og hlutverk þroskaþjálfa og mörg og ólík sjónarmið hafa komið fram um hvert skuli stefna. Það sem hefur þó sameinað þessi sjónarmið er samstaða með fötluðu fólki og baráttu þess fyrir sjálfsögðum mannréttindum.

Í erindinu verður sjónum beint að gömlum og nýjum áskorunum í námi þroskaþjálfa. Hvaða stefnur og straumar í málefnum fatlaðs fólks hafa verið stærstu áhrifavaldar? Hvað einkennir fræðasviðið, hverjar eru helstu áskoranir um þessar mundir og hver er framtíðarsýnin? Með hvaða hætti birtast áhrif þroskaþjálfafræða á Menntavísindasviði og í samfélagi án aðgreiningar?

Þátttakendur í pallborði:

  • Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar
  • Ruth Jörgensdóttir Rauterberg, aðjúnkt við Háskóla Íslands
  • Laufey Elísabet Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélag Íslands
  • Hanna Kristín Sigurðardóttir, þroskaþjálfi

Fundarstjóri verður Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, forseti Deildar menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands.

Erindi Guðrúnar verður táknmálstúlkað og streymt. Að erindi loknu verða málstofur á netinu sem helgaðar verða viðfangsefnum þroskaþjálfa.

Málstofur

Aðalfyrirlestur Menntakviku 2020 flytur Guðrún V. Stefánsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, á Alþjóðlegum degi þroskaþjálfa.

Aðalfyrirlestur Menntakviku: Þroskaþjálfafræði á krossgötum: Gamlar og nýjar áskoranir