
Vefmiðlun
60 einingar - Viðbótardiplóma
. . .
Diplómanám í vefmiðlun er hugsað sem góður undirbúningur fyrir þá sem hafa áhuga á að vinna við vefmiðlun, vefstjórnun og rafræna þjónustu í fyrirtækjum og stofnunum. Í náminu er stefnt að því að taka á helstu þáttum sem sérfræðingar í rafrænni þjónustu í fyrirtækjum og stofnunum sinna.
Fyrir nemendur
Viltu vita meira?

Um námið
Námið er eins árs (tveggja missera) hagnýtt þverfaglegt framhaldsnám í vefmiðlun innan hagnýtrar menningarmiðlunar. Námið er 60 einingar. Full námsframvinda á einu misseri miðast við 30 einingar. Allir sem lokið hafa BA-prófi með fyrstu einkunn (7,25) í hugvísindum, félagsvísindum eða skyldum greinum geta sótt um að innritast.
BA-próf eða sambærilegt próf með fyrstu einkunn (7,25) að jafnaði. Heimilt er að líta til starfsreynslu sé meðaleinkunn undir mörkum.