
Uppeldis- og menntunarfræði
60 einingar - Viðbótardiplóma
Viðbótardiplóma í uppeldis- og menntunarfræði er hugsuð fyrir þá sem vilja efla tengsl við vettvang og bæta við sig námi á meistarastigi án þess að fara í fullt meistaranám. Umsækjendur þurfa að hafa lokið bakkalárgráðu, að jafnaði með fyrstu einkunn. Námið er skipulagt sem staðnám eða sveigjanlegt nám í eitt til tvö ár.

Um námið
Í boði eru tvö spennandi kjörsvið og sérhæfa nemendur sig í einu þeirra.

Áherslur í námi
Meginmarkmið námsins er að efla tengsl við vettvang og auka sveigjanleika með því að bjóða diplómunám fyrir fólk sem vill bæta við sig námi á meistarastigi án þess að fara í fullt meistaranám. Að lokinni viðbótardiplómu getur nemandi farið í áframhaldandi nám til meistaragráðu.
Nemandi sem tekinn er inn á námsleiðina verður að hafa lokið grunnnámi, þ.e. BA, BS, eða B.Ed.-námi, eða sambærilegu námi, að jafnaði með fyrstu einkunn (7.25).
Umsækjendur á kjörsviðið Sérkennslufræði og skóli margbreytileikans skulu hafa lokið fullgildu kennaranámi, þroskaþjálfanámi, uppeldis- og menntunarfræðinámi eða sambærilegu námi til bakkalárgráðu. Enn fremur skulu þeir hafa leyfisbréf til kennslu í leik-, grunn- eða framhaldsskólum eða tveggja ára samfellda reynslu af starfi í skólum.

Starfsvettvangur
Að loknu námi opnast ýmsir möguleikar sem tengjast viðkomandi sérsviði, svo sem ýmis störf í skóla án aðgreiningar, stjórnun, fullorðinsfræðslu og símenntun.
Dæmi um starfsvettvang
- Kennsluráðgjöf í skóla án aðgreiningar
- Símenntun í fyrirtækjum
- Þróunarstarf í menntastofnunum

Félagslíf
Í uppeldis- og menntunarfræði er starfandi nemendafélagið Tumi. Farið er í vísindaferðir, haldnar árshátíðir, Pubquiz og próflokaskemmtanir. Tumi starfar með öðrum nemendafélögum sviðsins og er boðið upp á marga sameiginlega viðburði. Tumi er einnig hagsmunafélag og er nemendum innan handar.
Þú gætir líka haft áhuga á: | ||
---|---|---|
Hagnýt heilsuefling, Viðbótardiplóma | Heilbrigði og heilsuuppeldi, Viðbótardiplóma | Tómstunda- og félagsmálafræði, Viðbótardiplóma |
Þú gætir líka haft áhuga á: | |
---|---|
Hagnýt heilsuefling, Viðbótardiplóma | Heilbrigði og heilsuuppeldi, Viðbótardiplóma |
Tómstunda- og félagsmálafræði, Viðbótardiplóma |
Hafðu samband
Kennsluskrifstofa
1. hæð, Stakkahlíð – Enni
Opið kl. 8.15 – 15.00 alla virka daga
Sími 525-5950
menntavisindasvid@hi.is
Fyrirspurnum um námið í deildinni er beint til Jóhönnu K. Traustadóttur, deildarstjóra.
Sími 525-5951
jkt@hi.is
