
Tölvunarfræði
120 einingar - MS gráða
. . .
Námið er 120 einingar og telst fullgilt MS-próf.
Námið samanstendur af 30 eininga rannsóknarverkefni og 90 einingum í námskeiðum, eða 60 eininga rannsóknarverkefni og 60 einingum í námskeiðum.
Fyrir nemendur

Um námið
Námskeið eru valin í samráði við umsjónarkennara.
- Ef teknar eru 60 einingar í námskeiðum skulu að minnsta kosti 30 einingar vera námskeið merkt TÖL, HBV eða REI
- Ef teknar eru 90 einingar í námskeiðum skulu að minnsta kosti 45 einingar vera námskeið merkt TÖL, HBV eða REI
Nemendur geta valið á milli tveggja kjörsviða
Meistaraverkefnin eru oft hagnýt og unnin í samvinnu við fyrirtæki eða stofnanir.
Meistaraverkefni geta sprottið af áhuga nemanda á tilteknu viðfangsefni eða tengst rannsóknarverkefnum kennara.
- BS-próf í tölvunarfræði eða skyldri grein með meðaleinkunn 6,5 eða hærri. Þeir sem ekki hafa próf í tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði þurfa að uppfylla forkröfur. Athugið, kjörsviðið máltækni er eingöngu í boði fyrir íslensku mælandi nemendur
- Umsækjendur skulu skila stuttri greinargerð (1 bls.) þar sem þeir tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á þessu námi, markmið með náminu og hugsanlegt viðfangsefni í meistararitgerð.
- Öllum umsóknum skulu fylgja meðmæli frá 2 einstaklingum (kennari/yfirmaður) sem þekkja vel til umsækjenda og geta veitt honum skýra umsögn. Umsagnaraðilar þurfa að skila skriflegum umsögnum beint til Háskóla Íslands á netfangið umsokn@hi.is. Ef nemandi er að sækja um áframhaldandi nám í sömu deild þarf ekki að skila skriflegum umsögnum/meðmælabréfum.