
Þýskukennsla
MA gráða
Um er að ræða starfsmiðað réttindanám fyrir starfandi og verðandi þýskukennara í framhaldsskólum.

Um námið
Námið er skipulagt og kennt í samvinnu við Menntavísindasvið. Nemandi tekur 60 einingar í kennslufræði, þar af 50 einingar á Menntavísindasviði og 10 einingar í Mála- og menningardeild. Hann skal einnig ljúka 60 einingum í þýsku, þar af 30 eininga lokaverkefni.
Umsækjendur um þessa námsleið athugið:
Á rafrænu umsóknareyðublaði skal velja Menntun framhaldsskólakennara, MA, 120 einingar, og kjörsviðið Þýskukennsla.
BA-próf í þýsku eða sambærilegt nám, eða B.Ed.-próf, með 1. einkunn og 10e lokaritgerð veitir aðgang að MA-námi.
Þeir sem hafa lokið B.Ed.-prófi þurfa þó að ljúka undirbúningsnámi á BA-stigi áður en þeir hefja nám á MA-stigi. Þeir sem höfðu tungumálið sem kjörsvið þurfa að jafnaði að taka allt fyrsta árið í BA í þýsku, mínus MOM-námskeiðin tvö en skrifa BA-ritgerð í þýsku. Þeir sem höfðu ekki tungumálið sem kjörsvið taka að jafnaði 120 einingar í BA-náminu í þýsku, taka ekki MOM-námskeiðin tvö en skrifa BA-ritgerð.