Skip to main content

Mat á námskeiðum

Hafi nemendur lokið öðrum sambærilegum grunnnámskeiðum þá er hægt að senda inn formlega beiðni um mat á námskeiðum. Hafi þau námskeið verið tekin við annan háskóla þarf að skila inn námskeiðslýsingu og lokaeinkunn til verkefnastjóra fyrir 1. maí eða 1. desember ár hvert. Fulltrúar úr námsbrautarstjórn Talmeinafræði, MS taka ákvörðun um mat á námskeiðum og kalla til sérfræðinga eftir þörfum.