
Tæknifræði
90 einingar - Grunndiplóma
Diplómanám með áherslu á efnaiðnað undirbýr nemendur fyrir fjölbreytt störf í efnaiðnaði.
Að loknu námi búa nemendur yfir þekkingu og hæfni til að leysa tæknileg vandamál í efnaiðnaði.
Námið er kennt í Tæknifræðisetri Háskóla Íslands í Hafnarfirði og einnig að hluta til í fjarnámi.

Tækninám með áherslu á efnaiðnað - grunndiplóma
Námskeiðin eru sett upp með fyrirlestrum og verklegum æfingum sem kynnir nemendum fyrir hagnýtri hönnun og þróun á einföldum efnaferlum.
Námið byggir á góðum raungreinagrunni fyrir áframhaldandi tæknifræðinám á grunnstigi og sérhæfðri tækniþekkingu í efnaiðnaði.
Námið samanstendur af þremur misserum 30 ECTS einingar á misseri. Kenndar eru tvær sjö vikna lotur á hverju misseri, þrír kúrsar í senn 15 ECTS einingar í lotu.
Meðal viðfangsefna
- Tækniteikning
- Forritun
- Almenn efnafræði
- Efnagreining
- Eðlisfræði
- Stærðfræði
- Skapandi og gagnrýn skrif
Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf.
Umsækjendur sem stundað hafa nám á framhaldsskólastigi geta öðlast rétt til undanþágu frá framangreindum skilyrðum með því að þreyta stöðumat. Við mat á undanþágu er jafnframt tekið mið af starfsreynslu úr atvinnulífinu.
Umsækjendur sem uppfylla skilyrði um undanþágu þurfa að:
- Sitja undirbúningsnámskeið í stærðfræði á haustmisseri fyrsta árs.
- Ljúka undirbúningsnámskeiðum til að öðlast rétt til áframhaldandi náms á vormisseri fyrsta árs.

Starfsvettvangur
Brautskráðir nemendur starfa við ýmis störf til að mynda í líftækniiðnaði, lyfjaiðnaði, rafeinaiðnaði, verkefnum tengdum umhverfismálum, orku- og olíuiðnaði, matvælaiðnaði, snyrtivöruiðnaði o.fl. Slík störf fela meðal annars í sér að endurhanna efnaferla til að skala upp í framleiðslu.
Þeir geta meðal annars:
- Framkvæmt prófanir og komið með tillögur að breytingum og endurbótum
- Framkvæmt útreikninga fyrir samstarfsfólk
- Undirbúið smíðalýsingar fyrir efni og íhluti
- Áætlað kostnaðarverð fyrir ólíkar útfærslur búnaðar.

Félagslíf
- Félag nemenda í tæknifræðinámi við Háskóla Íslands heitir ASKIT
Hafðu samband
Skrifstofa
s. 525 4700
Nemendaþjónusta VoN
s. 525 4466 - nemvon@hi.is
Opið virka daga frá 8:30-16:00
Tæknigarður - Dunhaga 5, 107 Reykjavík
Askja - Sturlugata 7, 102 Reykjavík
Fylgstu með Verkfræði- og náttúruvísindasviði
