
Spænskukennsla
MA gráða
MA-nám í spænskukennslu er 120 eininga nám sem veitir í senn meistaragráðu og réttindi til kennslu í spænsku á framhaldsskólastigi.

Um námið
Þetta er starfsmiðað nám sem ætlað er jafnt starfandi kennurum og þeim sem hyggja á kennslu í spænsku í framhaldsskólum.
Umsækjendur um þessa námsleið athugið:
Á rafrænu umsóknareyðublaði skal velja Menntun framhaldsskólakennara, MA, 120 einingar, og kjörsviðið Spænskukennsla.
BA-próf í spænsku með fyrstu einkunn (7,25) að lágmarki eða sambærilegt próf veitir aðgang að MA-náminu. Þeir sem hafa lokið B.Ed.-prófi þurfa að ljúka undirbúningsnámi á BA-stigi áður en þeir hefja nám á MA-stigi. Að jafnaði er miðað við það að nemendur taki 120 einingar í BA-náminu í spænsku, taka ekki DET-námskeiðin tvö en skrifa BA-ritgerð.