
Sögukennsla
MA gráða
Tveggja ára nám í sagnfræði og kennslufræði sem veitir kennsluréttindi í framhaldsskólum.

Um námið
Meistaranám í sögukennslu er tveggja ára nám á MA-stigi í sagnfræði sem veitir nemendum kennsluréttindi í framhaldsskólum. Náminu er jafnframt ætlað að veita nemendum dýpri skilning á sagnfræði. Stúdent sem lokið hefur BA-prófi í sagnfræði með fyrstu einkunn frá viðurkenndum háskóla getur sótt um að innritast í nám til MA-prófs í sögukennslu.
Umsækjendur um þessa námsleið athugið:
Á rafrænu umsóknareyðublaði skal velja Menntun framhaldsskólakennara, MA, 120 einingar, og kjörsviðið Sögukennsla.
Stúdent sem lokið hefur BA-prófi í sagnfræði með fyrstu einkunn frá viðurkenndum háskóla getur sótt um að innritast í nám til MA-prófs í sögukennslu. Stúdent skal hafa lokið minnst 120e á BA-stigi í þeirri grein sem hann hyggst innritast í til MA-prófs.