Skip to main content

Tækifæri til starfsþjálfunar erlendis

10. nóvember kl. 13.00-13.40 
Teams kynning

Fulltrúi frá Alþjóðasviði kynnir möguleika á styrkjum til starfsþjálfunar eða rannsóknarvinnu í háskólum, fyrirtækjum eða stofnunum í Evrópu. 

Nemendur geta fengið starfsþjálfunina metna sem hluta af náminu við HÍ, hluta af lokaverkefni eða skráða í skírteinisviðauka. Þannig má einnig brúa bilið milli náms og starfs þar sem hægt er að fara í starfsþjálfun að lokinni brautskráningu frá HÍ.

Nemendur á öllum námsstigum geta farið í starfsþjálfun sem tengist námi þeirra og sótt um Erasmus+ styrk. Meistara- og doktorsnemar geta einnig sótt um Erasmus+ starfsþjálfunarstyrk til að fjármagna rannsóknardvöl erlendis. 

Kynningin er hluti af Alþjóðadögum HÍ dagana 8.-10. nóvember.