Tilgangur sjóðsins er að verðlauna verkfræðinga fyrir áhugaverð og vel unnin rannsóknarstörf er stuðlað hafa að framgangi verkfræðirannsókna við Háskóla Íslands. Sjóðurinn er stofnaður af Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund með gjafabréfi dagsettu 29. október 1987 í tilefni af 65 ára afmæli þess. Stofnframlagið er til minningar um verkfræðingana Knud Ziemsen borgarstjóra og Jón Þorláksson borgarstjóra. Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstætt starfandi stjórn. Staðfest skipulagsskrá Skipulagsskrá fyrir Starfssjóð Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands. 1. gr. Sjóðurinn heitir Starfssjóður Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands. Hann er stofnaður af Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund með gjafabréfi dagsettu 29. október 1987 í tilefni af 65 ára afmæli þess. Stofnframlagið er til minningar um verkfræðingana Knud Ziemsen, borgarstjóra, og Jón Þorláksson, borgarstjóra. 2. gr. Stofnfé sjóðsins er tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur. 3. gr. Stofnfé og tekjur sjóðsins eru: Framangreint fjárframlag, sbr. 2. gr. Minningargjafir er síðar kunna að berast sjóðnum. Vaxtatekjur og aðrar tekjur af eigum sjóðsins. 4. gr. Tilgangur sjóðsins er að verðlauna verkfræðinga fyrir áhugaverð og vel unnin rannsóknarstörf er stuðlað hafa að framgangi verkfræðirannsókna við Háskóla Íslands. 5. gr. Allar ákvarðanir varðandi ráðstöfun tekna tekur stjórn sjóðsins, sem skipuð er þremur mönnum. Stjórn Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands kýs tvo, en þriðji maður skal vera stjórnarformaður Verkfræðistofnunar. Kjörtímabil stjórnar sjóðsins er 3 ár og skiptir hún sjálf með sér verkum. 6. gr. Komi fram tillaga um breytingu á skipulagsskrá þessari skal boða til stjórnarfundar og telst tillagan samþykkt, ef allir stjórnarmenn greiða henni atkvæði. Sama gildir, ef tillaga kemur fram um að leggja sjóðinn niður. Ef sjóðurinn er lagður niður skulu fjármunir hans renna óskiptir til Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands. 7. gr. Stjórnin skal leitast við að ávaxta sjóðinn á sem hagkvæmastan hátt þannig að hann nái að þjóna tilgangi sínum sem best. Aldrei má veita einstaklingi lán úr sjóðnum. 8. gr. Höfuðstóll sjóðsins er myndaður af fjárframlagi því sem greint er frá í 2. gr. Fyrst skal veitt fé úr sjóðnum er höfuðstóll hefur verið ávaxtaður í þrjú ár. Þá má veita styrki úr honum sem nema allt að 95% af vaxtatekjum hans. Það sem umfram er og aðrar tekjur skal leggjast við höfuðstólinn. Höfuðstólinn skal aldrei skerða. 9. gr. Endurskoðendur sjóðsins eru endurskoðendur sjóða Háskóla Íslands kjörnir af háskólaráði. 10. gr. Leita skal staðfestingar dómsmálaráðherra á skipulagsskrá þessari. Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 8. apríl 1991. F. h. r. Ólafur W. Stefánsson. Fanney Óskarsdóttir. facebooklinkedintwitter