Skip to main content

Um MA-nám í hugmynda- og vísindasögu

Hugmynda- og vísindasaga er 120e meistaranám sem ljúka má á tveimur árum. Námsleiðin er samvinnuverkefni Hugvísindasviðs og Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, nánar tiltekið Sagnfræði- og heimspekideildar og Raunvísindadeildar.

Markmið

Hugmynda- og vísindasaga er víðfeðmt fræðasvið sem fæst við sögulega þróun hugmynda um manninn og samfélagið sem og þróun vísindalegrar þekkingar.

Markmið námsins er að auka skilning á eðli og möguleikum mannlegrar hugsunar og vísinda. Í náminu fá nemendur staðgóða þekkingu á sögu einstakra fræðigreina á ýmsum sviðum vísinda, þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum og rannsóknum, og traustan undirbúning undir doktorsnám og ýmis störf á ólíkum sviðum atvinnu-, mennta- og menningarlífs.

Um námið

Umsækjendur um námið þurfa að hafa lokið BA, BEd, BS eða sambærilegu háskólaprófi frá viðurkenndum háskóla með fyrstu einkunn (7,25) að lágmarki eða jafngildi hennar, og skal lokaverkefni hafa hlotið fyrstu einkunn hið minnsta.

Námið skiptist í kjarnanámskeið (60e) sem öllum nemendum er ætlað að taka og valnámskeið (30e). Nemendur skrifa meistararitgerð (30e).

Kjarnanámskeiðin eru kennd á vegum Sagnfræði- og heimspekideildar (40e) og Raunvísindadeildar (20e). Þeim er ætlað að kynna nemendum aðferðir í sögu hugmynda og vísinda, siðfræði vísinda og nokkur helstu viðfangsefni á þessu fræðasviði. Einnig er kjarnanámskeið í málstofuformi tengt undirbúningi nemenda fyrir ritun meistararitgerðar.

Valnámskeið sem nemendum stendur til boða að taka eru af ýmsum fræðasviðum háskólans. Meðal áherslusviða sem valnámskeiðin varða eru stjórnmálahugmyndir, menningarhugmyndir (frelsi, eðli mannsins, siðferði, trú og saga menntunar), vísindasaga (heimsmynd og saga vísindagreina, þ.á m. læknisfræði, stærðfræði og hagfræði) og tæknisaga.

Nánari upplýsingar

Hægt er að hafa samband við verkefnastjóra Sagnfræði- og heimspekideildar og verkefnastjóra alþjóðamála til að fá nánari upplýsingar um nám og skiptinám. Nánari upplýsingar í kennsluskrá Háskóla Íslands.