Orkunotkun í Háskóla Íslands Hér má skoða þróun á orkunotkun fyrir rafmagn (kWst) og heitavatn (m3) á stöðugildi við Háskóla Íslands frá 2012-2019. Upprunavottorð raforku HÍ Háskóli Íslands notar vottað rafmagn frá endurnýjanlegum orkulindum Orku náttúrunnar og hefur fengið upprunavottorð á 100% endurnýjanlega orku. Raforka Nokkur góð ráð til þess að spara rafmagn Stilltu orkunotkun á tölvunni þinni þannig að þær fari í viðbragðsstöðu (standby) eða svefnham standi þær ónotaðar í skemmri eða lengri tíma. Raftæki í biðstöðu geta eytt um 40% af þeirri orku sem er notuð þegar kveikt er á þeim. Gott er að koma fyrir millistykkjum þar sem mörg raftæki eru sem hægt er að slökkva á með einum takka. Stilltu ljósritunarvélar og prentara þannig að tækin fari í viðbragðsstöðu þegar þau hafa ekki verið í notkun í skemmri tíma eða lengri tíma. Veldu orkunýtin rafmagnstæki – það sparar bæði orku og peninga. Ekki nota skjáhvílur. Slökktu á tölvum og skjám að loknum vinnudegi. Slökktu ljós í þeim rýmum sem eru ekki í notkun og öll ljós í lok dags. Ljós í mannlausum herbergjum er sóun á orku og peningum. Það er tilvalið að nýta dagsbirtuna og slökkva ljós þegar tækifæri gefst – dagsbirtan er alltaf fallegasta birtan! Veldu sparnaðarastillingu á uppþvottavélum, þekktu skammtastærðir og gangsettu einungis fullhlaðnar vélar á kaffistofum. Uppþvottavél notar jafnmikið rafmagn hvort sem hún er hálftóm eða full! Veldu frekar að ganga upp stigann en að fara í lyftu. Gakktu frá rýmum fyrir frí, slökktu öll ljós og taktu raftæki úr sambandi. Taktu hleðslutæki fyrir t.d. fartölvu, farsíma eða spjaldtölvur alveg úr sambandi ef þeirr er ekki þörf – þau taka rafmagn jafnvel þó tækin séu fullhlaðin. Taktu farsímann úr sambandi að lokinni hleðslu. Bæði sparar það rafmagnsnotkun og eykur líftíma batterísins. Hleðslan endist lengur ef síminn helst hlaðinn í milli 40-80%! Háskóli Íslands er þátttakandi í verkefninu Græn skref í ríkisrekstri sem hefur það að markmiði að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum í starfsemi sinni, meðal annars með því að draga úr rafmagnsnotkun. Er umhverfisvænna að slökkva ljósin? Oft hefur verið rætt um hvort að endingartími ljósapera styttist ef það er sífellt veri að slökkva og kveikja á þeim allan daginn. Er sú orka sem fer í að kveikja á perunum meiri en orkusparnaðurinn sem næst við það að hafa ljósin slökkt? Meginreglan er sú að best sé að slökkva á ljósum þegar rými eru ekki í notkun. Hins vegar getur skipt máli hvaða ljósapera er í notkun á vinnustaðnum. Hér að neðan má finna stuttan fróðleik um mismunandi gerðir á ljósaperum: Halogen ljós. Best er að slökkva alltaf á ljósum með halogen perum. Flúorljós og sparperur. Flúorljós og sparperur nýta orku mjög vel og getur reynst flókið að segja til um hvenær best er að slökkva á slíkum ljósum. Þumalputtareglan er þó sú að ef þú kemur aftur inn í rými innan 15 mínútna þá skuli hafa kveikt á ljósunum, en ef rýmið mun standa ónotað lengur en í 15 mínútur skuli slökkva á ljósunum. LED ljós. Það hefur engin áhrif á líftíma LED ljósa hve oft er slökkt og kveikt á þeim. Því skal alltaf slökkva á LED perum þegar þau eru ekki í notkun. Glóperur. Glóperur eru óhagkvæmasti ljósgjafinn og þær nýta orkuna verst af þeim ljósgjöfum sem eru í boði. 90% af orkunni sem þær nota skila sér sem hiti og aðeins 10% sem ljós. Ljós sem eru með glóperum á alltaf að slökkva þegar þau eru ekki í notkun. Heitavatns notkun Hér að neðan er að finna fróðleik um heitavatn okkar Íslendinga og nokkur ráð um hvernig megi draga úr notkun heitavatnsins. Íslendingar telja heitt vatn til grunnþarfa sinna. Oft gleymist að þessi orka telst til munaðar víða í heiminum. Ein sú dýrmætasta auðlind sem við Íslendingar eigum er heita vatnið okkar. Heita vatnið er í senn ódýrt, vistvænt og öruggt. Ísland nýtur sérstöðu hvað húshitun varðar, en víða í heiminum eru hús hituð með kolum og annarri konar brennslu með tilheyrandi loftmengun. 90% af notkun heita vatns er vegna húshitunar. Afganginn notum við til annarra hluta, eins og að þrífa, vaska upp eða baðnota. Sparaðu með að lækka í ofninum. Það getur munað heilmiklu og sparað umtalsverðar fjárhæðir að lækka hita um einungis 1 gráðu á stillingum. Um leið og hlýnar utandyra er hægt að byrja að huga að því að spara heitavatnsnotkunina, til dæmis þarf ekki að hita hús í 10° hita jafnmikið og í 5° frosti. Stilltu ofna reglulega. Gott er að hafa í huga að stilla ofna reglulega og nýta sem best heita vatnið á veturna. Ekki er mælt með að ofnar séu byrgðir með húsgögnum eða gluggatjöldum, en þau geta hindrað loftstreymið frá ofnunum og þannig „gabbað“ ofnlokur þannig að ofnar loka fyrir hitun áður en herbergishiti er nægilegur. Gott er að hafa það skráð einhvers staðar hvaða stilling hentar best hverju rými fyrir sig. Þannig er auðveldara að fylgjast með og taka eftir því ef hitastillirinn er ranglega stilltur. Að halda réttu hitastigi innandyra getur haft áhrif á vinnuafköst fólks. Verði of kalt í vinnurými bregst líkaminn við með því að auka vöðvaspennu, vinnuhraði minnkar og hætta á mistökum getur aukist. Hins vegar ef of heitt verður í vinnurými getur færst drungi yfir fólk, minnkað andlega og líkamlega færni og aukið vanlíðan. Hæfilegt hitastig er 18-22°C en við kyrrsetustörf er þægilegasta hitastigið talið vera um 20-22°C. Ekki hita ofna að óþörfu. Það er eðlilegt að ofnar séu hafðir á lágum hita ef mikið er af ókeypis varma í herberginu, sem er t.d. sólarljós eða raflýsing. Þannig má spara heitavatnið með tilheyrandi sparnaði. Nánari upplýsingar er að finna hér. Kalda vatnið Fróðleikur um kalda vatnið Kalda vatnið okkar er dýrmæt auðlind sem okkur ber að vernda með öllum tiltækum ráðum. Vatn á sér hvorki upphaf né endi í náttúrunni, það er á eilífri hringrás. Neysluvatnið á Íslandi inniheldur lítið af steinefnum miðað við nágrannalönd okkar. Sýrustig kalda vatnsins (þ.e. ph gildi) á Reykjavíkursvæðinu er frá 8,75 uppí 9 sem er fremur hátt. Ástæða þess er að vatnið okkar rennur í gegnum hraun sem er ríkt af basalti. Íslenskt vatn er undir 2°dh og því mjög mjúkt, á Reykjavíkursvæðinu er það 0,2 til 0,6 °dh eða sérstaklega mjúkt. Ekki á að þurfa nein mýkingarefni eða kalkhreinsi eða sölt í þvotta/uppvöskunarvélar á Íslandi. Mýkt vatnsins hefur þau áhrif að mun minn magn af sápu þarf til að þvo sér um hár og hendur, einnig þarf minna þvottaduft við fata og diskaþvott! Nánari upplýsingar um kalda vatn okkar er að finna á hér. facebooklinkedintwitter