Sorpflokkunarkerfi HÍ Háskóli Íslands er samfélag nemenda og starfsfólks og einn stærsti vinnustaður landsins. Háskólaborgararnir eru því stór hluti neytenda landsins og rétt eins og öðrum fylgir þeim sorp. Allt sem fer óflokkað í ruslatunnuna endar á einn eða annan hátt úti í náttúrunni og því er nauðsynlegt að flokka allt sorp sem okkur fylgir. Auðlindir jarðar eru takmarkaðar og því er mikilvægt að nýta þær vel, stunda neyslu í hófi og endurnýta eða endurvinna það sem við erum með undir höndum. Með því að endurvinna er komið í veg fyrir óþarfa sóun þó enn betra sé að forðast að kaupa drasl eða óþarfa umbúðir sem enda strax í ruslinu. Hér má finna nánari upplýsingar um sorpflokkunarkerfi HÍ. Sorpmagn - þróun Hér má skoða þróun heildarsorpmagns, sorp á hvern starfsmann og hlutfall flokkunar í Háskóla Íslands árin 2014-2019. Flokkunartafla HÍ Upplýsingar um staðsetningu sorpíláta og losunaraðila má finna í flokkunartöflu HÍ Spilliefni Rétt meðferð spilliefna er öryggis og umhverfismál. Það er stefna Háskóla Íslands að fylgja alþjóðlegum reglum um umhverfismál og förgun lífsýna og spilliefna. Mörg þeirra efna sem notuð eru innan háskólans eru skaðleg umhverfi, mönnum og dýrum. Því ber að flokka allt sorp og spilliefni á réttan hátt og senda til förgunar hjá viðurkenndum aðila. Inná heimasíðu öryggisnefndar HÍ er að finna upplýsingar um flokkun og förgun spilliefna. Pappírsnotkun í HÍ Pappír getur haft margvísleg áhrif á umhverfið allt frá framleiðslu til notkunar. Háskóli Íslands leggur sitt að mörkum við að draga úr pappírsnotkun. Sorpflokkunarkerfi Háskóla Íslands facebooklinkedintwitter