Skip to main content

Sprettur-Mentor

Sprettur-Mentor - á vefsíðu Háskóla Íslands

Hvað er að vera mentor í Spretti?

Mentorar eru háskólanemar sem vilja láta gott af sér leiða. Markmið hlutverksins er að vera menningarbrúarsmiður og leiðbeinandi í lærdómsferli aðra nemenda í verkefninu Spretti. Sem mentor sinnir þú því mikilvæga hlutverki að styðja og hvetja ungmenni í námi og félagslífi. Þitt hlutverk er að skapa uppbyggjandi mentorasambönd við aðra, gera skemmtilega hluti með þeim, sem og taka þátt í sameiginlegum heimavinnuhóp og viðburðum með öllum hópnum. Mentorhlutverkið snýst um tengslamyndun og í þátttöku felst því skuldbinding gagnvart ungmennunum sem mentor styður.

Við erum að leita að háskólanemum sem eru eldri en 18 ára, eru með hreint sakavottorð og geta skuldbundið sig til að taka þátt í háskólaár 2024-2025. Við hvetjum nemendur á öllum námsbrautum og af öllum kynjum til að sækja um!

Hverju taka mentorar þátt í?

  • Lærðómsríkar málstofur í námskeið Mentor í Spretti GKY001M.

  • Mánaðarlegri samveru með þátttakendur Spretts.

  • Mánaðarlegum heimavinnuhóp.

  • Sameiginlegum menningar- og háskólaviðburðum.

Hvað fá mentorar?

  • 5 eininga námskeið um mentorhlutverkið þar sem við lærum meðal annars um samfélagsleg nýsköpun, leiðtogafærni, fjölmenningarfærni, hnattrænborgaravitund, og fleira.

  • Skírteinisviðauka/Diploma supplement.

  • Persónulegan stuðning og tækifæri til að blómstra og prófa fjölbreyttar aðferðir til að styðja aðra.

Hvernig verð ég mentor í Spretti?

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í Spretti, endilega fylltu út þetta eyðublað og verkefnisstjóri Spretts mun hafa samband við þig. Umsækjendur eru boðnir í viðtal og svo tengdir við aðra nemenda byggt á áhugasviði, áhugamálum og persónulegum óskum. Hafa skal í huga að aðeins 15-30 háskólanemar komast í háskólaár 2024-2025.

Hafðu samband

Juan Camilo Roman Estrada
Fjölmenningarfulltrúi og verkefnisstjóri Spretts
Tölvupóstur: juancamilo@hi.is
Sími: 525-5405

Sabrina Rosazza
Starfsmaður Spretts
Tölvupóstur: sabrinar@hi.is
Sími: 525-5417

Verkefnisstjóri Spretts
Tengt efni
Viðtöl við mentora í Spretti