Hefur þú áhuga á samspili ferðaþjónustu og ferðamennsku við náttúru og samfélög á norðurslóðum? Kjörsvið um ferðamál norðurslóða fjallar um einkenni, áskoranir og möguleika ferðaþjónustu og ferðamennsku á norðurslóðum. Kjörsviðið veitir greinargóða yfirsýn um ferðamál á norðurslóðum og veitir innsýn í aðstæður og samhengi ferðamála á ólíkum stöðum og í fjölbreyttum samfélögum norðurslóða. Í náminu er fjallað um þróun ferðaþjónustu á norðurslóðum frá ólíkum sjónarhólum og hún sett í samhengi við margskonar breytingar sem eru að eiga sér stað á svæðinu. Þar má nefna loftslagsbreytingar og áætlanir um auðlindanýtingu sem og vaxandi áhuga fólks á að kynnast og ferðast um norðlæg svæði. Kjörsviðið miðar að því að byggja upp þekkingu og aðferðir til að efla þróun ábyrgrar ferðaþjónustu á norðurslóðum. Í náminu gefst nemendum kostur á byggja upp sérfræðiþekkingu á ferðamálum norðurslóða og sjálfbærri þróun sem nýtist í starfi jafnt innan einkageirans og hjá hinu opinbera. Kjörsviðið leggur áherslu á alþjóðlegt sjónarhorn. Tvö kjarnanámskeið þess eru boðin í fjarnámi í samstarfi við Þemanet Háskóla Norðurslóða um ferðamál. Meðal viðfangsefna Sjálfbærni í ferðaþjónustu norðurslóða Ferðaþjónusta og samfélög frumbyggja Stjórnskipun og stefnumótun í ferðamálum norðurslóða Tengsl ferðaþjónustu við aðrar atvinnugreinar á norðurslóðum Skapandi ferðaþjónusta á norðurslóðum Iðkun og upplifun ferðamanna á norðurslóðum Náttúra og menning sem aðdráttarafl í ferðamennsku norðurslóða Inntökuskilyrði Nemendur sem hafa ekki lokið BA- eða BS-gráðu í ferðamálafræði þurfa að taka tvö grunnnámskeið í ferðamálafræði. Sjá nánar í kennsluskrá. Umsækjendur skulu skila stuttri greinargerð (1 bls.) þar sem þeir tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á þessu námi og markmið með náminu. Öllum umsóknum skulu fylgja meðmæli frá 2 einstaklingum (kennari/yfirmaður) sem þekkja vel til umsækjenda og geta veitt honum skýra umsögn. Umsagnaraðilar þurfa að skila skriflegum umsögnum beint til Háskóla Íslands á netfangið umsokn@hi.is. Ef nemandi er að sækja um áframhaldandi nám í sömu deild þarf ekki að skila skriflegum umsögnum/ meðmælabréfum. facebooklinkedintwitter