Skip to main content

Háskólinn og heimsmarkmiðin – Engin fátækt

Háskólinn og heimsmarkmiðin – Engin fátækt - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. nóvember 2019 12:00 til 13:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Beint streymi verður af viðburðinum
Öll velkomin

• Háskóli Íslands með nýja viðburðaröð um helstu áskoranir sem þjóðir heims standa frammi fyrir
• Hátíðasal Háskóla Íslands, 19. nóvember frá kl. 12 til 13.30
• Engin fátækt í háskerpu

Fyrsta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna snýst um að útrýma fátækt í allri sinni mynd alls staðar eigi síðar en 2030.
Sigrún Ólafsdóttir, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild, Berglind Rós Magnúsdóttir, dósent við Deild menntunar og margbreytileika, Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, fjalla um baráttuna við að útrýma fátækt bæði hér heima og erlendis í öðrum viðburði raðarinnar Háskólinn og heimsmarkmiðin.

Streymt verður frá viðburðinum:

Um viðburðaröðina

Sameinuðu þjóðirnar hafa skilgreint sautján heimsmarkmið sem lýsa stærstu viðfangsefnum og helstu áskorunum sem þjóðir heims standa nú frammi fyrir. Öll aðildarríki samtakanna hafa samþykkt að innleiða markmiðin.

Þegar horft er til markmiðanna er ljóst að margt er undir og því gríðarlega mikilvægt að sérfræðiþekking og rannsóknir séu nýttar til lausnar á þeim viðamiku áskorunum sem heimsmarkmiðin lýsa. Háskóli Íslands leggur mikla áherslu á að þekkingarsköpun og rannsóknir við skólann hafi víðtæk áhrif og takist á við þær flóknu áskoranir sem Ísland og heimurinn standa frammi fyrir. Þess vegna hefur skólinn ýtt úr vör nýrri viðburðaröð, sem hefur fengið heitið Háskólinn og heimsmarkmiðin, þar sem áhersla verður á öll sjálfbærnimarkmiðin sautján og skrefin sem taka þarf til þess að ná þeim.

Viðburðaröðin er haldin í samvinnu við Stjórnarráðið. Eitt heimsmarkmið verður tekið fyrir í hverri viðburðalotu þar sem framúrskarandi fræðimönnum frá öllum fræðasviðum Háskóla Íslands verður teflt fram ásamt lykilfólki úr íslensku samfélagi,  til að kryfja og ræða þau brýnu verkefni sem tengjast hverju markmiði.

Sjá nánar á heimasíðu Háskóla Íslands www.hi.is. Nánari upplýsingar um heimsmarkmiðin á vefsíðu Stjórnarráðsins www.heimsmarkmidin.is

Öll velkomin.

Sigrún Ólafsdóttir, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild, og Berglind Rós Magnúsdóttir, dósent við Deild menntunar og margbreytileika, Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, fjalla um baráttuna við að útrýma fátækt bæði hér heima og erlendis í hádeginu þann 19. nóvember.

Háskólinn og heimsmarkmiðin – Engin fátækt