Skip to main content
9. nóvember 2017

LEGO-keppni og fjölskylduskemmtun í Háskólabíói

Hátt í tvö hundruð grunnskólanemendur taka þátt í hinni árlegu tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League sem fram fer í Háskólabíói laugardaginn 11. nóvember. Að þessu sinni er 21 lið frá 18 grunnskólum skráð til þátttöku og spreyta þau sig á forritun, rannsóknarverkefni, teymisvinnu og vélmennakappleik. Liðin hafa unnið ötullega að undirbúningi í allt haust og mæta þrautþjálfuð til leiks en sigurliðinu gefst kostur á að taka þátt í norrænni keppni FIRST LEGO í byrjun desember. Á keppnisdeginum verður jafnframt fjölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna í anddyri Háskólabíós og opið verður í Vísindasmiðjunni.

Keppendur um allt land eru nú að leggja lokahönd á undirbúning fyrir keppnina er hún skiptist í fjóra meginhluta: Forritun, rannsóknarverkefni, liðsheild og vélmennakappleik. Þátttakendur forrita vélmenni úr tölvustýrðu Legói sem ætlað er að leysa tiltekna þraut sem tengist þema ársins sem að þessu sinni er vatn. Þá eiga keppendur að vinna sjálfstætt rannsóknarverkefni sem einnig tengist vatni. Enn fremur þurfa keppnisliðin að gera grein fyrir því hvernig þau forrita vélmennin og síðast en ekki síst horfir dómnefnd til liðsheildar. Þátttaka í keppninni reynir því á margs konar hæfni og þekkingu grunnskólanemendanna.

Markmiðið með FIRST LEGO League hönnunar- og tæknikeppninni er að efla færni og vekja áhuga ungs fólks á tækni og vísindum með því að leggja fyrir þau spennandi verkefni sem örva nýsköpun, byggja upp sjálfstraust og efla samskipta- og skipulagshæfni. Háskóli Íslands hefur staðið fyrir keppninni í rúman áratug.

Hefð er fyrir því að blása til fjölskylduhátíðar í anddyri Háskólabíós á keppnisdaginn og þar verður margt í boði fyrir alla aldurshópa. Meðal annars verður vatn þar til umfjöllunar í anda keppninnar; vatnið umhverfis okkur, lífið sem í því býr og vatnið innra með okkur. Landsvirkjun, nemendur í næringarfræði og umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands og Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Sandgerði verða á staðnum og kynna vatnabúskap í ýmsum myndum.

Fyrirtækið Krumma býður gestum á öllum aldri að glíma við skemmtilegar Legóþrautir, rafknúninn kappakstursbíll Team Spark verður til sýnis og Vísindasmiðjan vinsæla verður opin. 

Aðgangseyrir er enginn og eru allir hjartanlega velkomnir, opið er kl. 12.30 til 15.30.

Hægt hefur verið að fylgjast með undirbúningi liðanna á Fésbókarsíðu keppninnar.

Þátttökulið í tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League

Natalia og kjallararotturnar frá Brúarásskóla á Fljótsdalshéraði
Team 10 frá Egilsstaðaskóla
Folda frá Foldaskóla
Filipo Berio frá Garðaskóla
LegóFásk frá Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grundargengið frá Grunnskóla Grundarfjarðar
Vatnarius frá Grunnskóli Hornafjarðar
Flóðið frá Grunnskóla Hornafjarðar
Akvo frá Grunnskóla Hornafjarðar
Vatnsdroparnir frá Grunnskóla Reyðarfjarðar
GRÍSA frá Grunnskólanum á Ísafirði
Legoboys frá Lágafellsskóla í Mosfellsbæ
They are the best frá Landakotsskóla
Vetnisróbótarnir frá Landakotsskóla
League of LEGOS frá Lundarskóla á Akureyri
Myllarnir frá Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ
El Grilló frá Seyðisfjarðarskóla
Team Tjarnó frá Tjarnarskóla
Vættir frá Vættaskóla
H2O frá Valsárskóla á Svalbarðseyri
X frá Vopnafjarðarskóla
 

Frá LEGO-keppni 2016