Skip to main content

Doktorsnám á VON

Doktorsnám á VON - á vefsíðu Háskóla Íslands

Verkfræði- og náttúruvísindasvið (VON) býður uppá fjölbreytt rannsóknatengt doktorsnám. Námið er 180 einingar. Miðað er við þriggja ára nám hið minnsta í fullu starfi.

Umsækjendur í doktorsnám þurfa að vera komnir með leiðbeinanda og hugmynd að verkefni áður en sótt er um nám. Nemendum er bent á að hafa samband við námsbrautarformann og/eða deildarforseta á því fagsviði sem þeir hafa hug á.

Með umsókn í doktorsnám þarf að skila staðfestum afritum af öllum prófskírteinum á pappír til Háskóla Íslands eigi síðar en tveimur vikum eftir að umsókn er skilað inn.

Námsleiðir í doktorsnámi