Skip to main content

Styrkir á Menntavísindasviði

Styrkir á Menntavísindasviði - á vefsíðu Háskóla Íslands

Á Menntavísindasviði eru stundaðar grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir, þjónusturannsóknir og áhersla lögð á fjölbreytta miðlun þekkingar – öflugar samræður við íslenskt samfélag og alþjóðlega fræðasamfélagið.

Nemendum, kennurum og starfsfólki Háskóla Íslands standa til boða styrkir úr sjóðum sem starfræktir eru við Háskólann og ýmsum erlendum sjóðum.

Annars vegar er um að ræða sjóði sem veita styrki til rannsókna, einkum til doktorsnema og fræðimanna við skólann.

Hins vegar eru Styrktarsjóðir Háskóla Íslands en þar er að finna ríflega sextíu sjóði og gjafir sem ánafnaðar hafa verið Háskólanum frá stofnun hans. Flestir sjóðanna starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, sem ætlar þeim að úthluta styrkjum og viðurkenningum til ýmissa verkefna nemenda, kennara og vísindamanna.

Sjóðir á sviði menntavísinda

Sjá aðra styrki sem standa kennaranemum og starfandi kennurum til boða.

Tengt efni