Vinsamlegast athugið að umsókn er ekki gild fyrr en fylgigögn hafa borist. Skilafrestur fylgigagna kemur fram í tölvupósti til umsækjenda sem berst í kjölfar umsóknar. Umsækjendur sem hafa lokið prófgráðu við HÍ eða að minnsta kosti 60 ECTS einingum eftir 1981 þurfa hvorki að skila inn staðfestu afriti á pappír af prófskírteini né af stúdentsprófsskírteini. Óstaðfest eða skönnuð skírteini eru ekki gild fylgigögn. Með staðfestum afritum er átt við ljósrit sem eru staðfest með stimpli í lit og með undirskrift frá viðkomandi skóla, eða öðrum til þess bærum aðila, t.d. sýslumanni. Gagnlegt að vita Fylgigögn með umsókn í grunnnám Skila þarf staðfestu afriti af öllu stúdentsprófsskírteininu eins fljótt og hægt er og ekki seinna en innan tilskilins skilafrests hverju sinni. Umsækjendur sem hafa lokið prófgráðu við HÍ eða að minnsta kosti 60 ECTS einingum eftir 1981 þurfa hvorki að skila inn staðfestu afriti á pappír af prófskírteini né af stúdentsprófsskírteini. Staðfest afrit skal vera á pappírsformi, undirritað og stimplað í lit af viðkomandi skóla. Óstaðfest eða skönnuð skírteini eru ekki tekin gild. Umsækjendur sem í umsóknarferlinu veita Háskóla Íslands leyfi til að sækja rafrænt stúdentsprófsskírteini úr Innu þurfa ekki að skila staðfestu afriti. Umsókn um undanþágu frá formlegum inntökuskilyrðum (eingöngu mögulegt þegar sótt er um nám sem hefst á haustmisseri): Umsókn um undanþágu þarf að fylgja staðfest afrit á pappírsformi af námsferli umsækjandi í framhaldsskóla, ásamt starfsvottorði frá vinnuveitanda. Viðtakandi fylgigagna er: Háskóli Íslands Nemendaskrá Háskólatorgi Sæmundargötu 4 102 Reykjavík Nánari upplýsingar: Nemendaskrá, 3. hæð í Háskólatorgi, s. 525 4309, netfang nemskra@hi.is. Fylgigögn með umsókn í framhaldsnám Með umsókn um framhaldsnám þarf að skila til Háskóla Íslands staðfestum afritum á pappír af öllum prófskírteinum, ekki seinna en tveimur vikum eftir að umsóknarfresti lýkur. Umsækjendur sem hafa lokið prófgráðu við HÍ eða að minnsta kosti 60 ECTS einingum eftir 1981 þurfa hvorki að skila inn staðfestu afriti á pappír af prófskírteini né af stúdentsprófsskírteini. Óstaðfest eða skönnuð skírteini eru ekki tekin gild. Umsækjendur sem lokið hafa grunnnámi frá HÍ eftir 1981 þurfa ekki að skila afriti af prófskírteini. Bent skal á að kröfur deilda HÍ um fylgiskjöl með umsóknum eru mismunandi. Umsækjendur þurfa að afla sér upplýsinga á vefsíðu viðeigandi deildar, í kennsluskrá HÍ eða hafa samband við viðeigandi deildarskrifstofu. Viðtakandi fylgigagna er: Háskóli Íslands Nemendaskrá Háskólatorgi Sæmundargötu 4 102 Reykjavík Athugið: Umsækjendur um doktorsnám eiga að skila öllum fylgigögnum til Nemendaskrár, innan þeirra tímamarka sem viðkomandi deild setur. Nánari upplýsingar veitir: Nemendaskrá HÍ, s. 525 4309, netfang nemskra@hi.is. Rafræn fylgigögn Í rafrænu umsókninni er mögulegt að umsækjandi þurfi að setja inn tiltekin fylgiskjöl á pdf formi. Þetta er nokkuð misjafnt eftir deildum og námsleiðum, en ráðlegt er að hafa slík skjöl tilbúin áður en hafist er handa við að fylla út umsóknina. Yfirlit um námsleiðir og þau fylgigögn sem þarf að skila (.xlsx) Ef rauð stjarna (*) er við fylgiskjalareit í rafrænu umsókninni er nauðsynlegt að setja þar inn pdf skjal, annars er það val umsækjandans. Ef einhver af neðantöldum reitum birtist ekki í rafrænni umsókn óskar viðkomandi deild ekki eftir þeim upplýsingum. Deildin gæti þó viljað fá upplýsingarnar með öðrum hætti. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá viðeigandi deildarskrifstofu. Upplýsingar og rafræn fylgigögn sem algengt er að óskað sé eftir í umsókn Meðmælendur Nöfn og netföng tveggja meðmælenda. Þessar upplýsingar þarf að slá inn í þar til gerða reiti í umsókninni. Heppilegt er að meðmælendur séu núverandi eða fyrrverandi kennarar í háskólanámi eða yfirmenn á vinnustað. Meðmælendur ættu ekki að vera fjölskyldumeðlimir eða nánir vinir umsækjanda. Ef óskað er eftir meðmælabréfum og/eða formum þurfa umsækjendur að hafa samband við meðmælendur og biðja um að þau verði send beint frá meðmælenda til Nemendaskrár HÍ með bréfpósti eða tölvupósti á umsokn@hi.is. Ferilskrá (CV) Skjal sem inniheldur helstu upplýsingar um náms- og starfsferil umsækjanda ásamt frekari upplýsingum sem gætu mögulega stutt umsóknina. Greinargerð Skjal sem inniheldur upplýsingar um markmið og áhugasvið umsækjanda og væntingar hans til námsins. Þar þarf m.a. að koma fram hvers vegna umsækjandi hefur valið viðkomandi námsleið og hvernig hann hyggst nýta sér námið. Lengd greinagerðar er mismunandi eftir námsleiðum, nánari upplýsingar má fá hjá viðkomandi deild. Prófskírteini/námsyfirlit Skjal sem inniheldur prófskírteini og námsferil sem meta á til inngöngu. Umsækjendur sem eru að ljúka grunnnámi þurfa að setja inn skjal sem inniheldur núverandi námsferil og staðfestingu á áætlaðri brautskráningu. Athugið að eftir sem áður þarf að senda inn staðfest afrit á pappír. Nemendur sem eru að ljúka eða hafa lokið gráðu við HÍ eftir 1981 þurfa ekki að setja neitt inn í þennan reit. Prófskírteini/námsyfirlit 2 Skjal sem inniheldur skírteini og/eða námsferla sem komust ekki í fyrri reitinn. Athugið að eftir sem áður þarf að senda inn staðfest afrit á pappír Rannsóknaráætlun Skjal sem inniheldur drög að rannsóknaráætlun. Athuga þarf hjá viðkomandi deild á hvaða formi áætlunin á að vera. Einhverjar deildir eru með sérstök eyðublöð sem þarf að fylla út og ættu þau að vera aðgengileg á heimasíðu deildar í hverju tilviki. Ýmis önnur fylgiskjöl Önnur rafræn fylgiskjöl sem stutt gætu umsóknina og falla ekki undir ofantalið. Vinsamlegast hengið aðeins pdf skjöl við umsóknina. Staða umsóknar Fylgjast þarf með stöðu umsóknar undir flipanum „Yfirlit umsókna“ á umsóknarsíðu þinni. Þú ferð inn á síðuna með því að nota netfangið þitt og lykilorðið sem þú bjóst til þegar þú skráðir þig inn í samskiptagátt Háskóla Íslands. Ef innskráning tekst ekki er hægt að senda tölvupóst á umsokn@hi.is. eða haskolatorg@hi.is og óska eftir aðstoð. Fylgjast með stöðu umsóknar Samþykkt umsókn Ef umsókn um nám er samþykkt ber umsækjanda að greiða skrásetningargjald fyrir komandi skólaár. Næsta skref í umsóknarferlinu, eftir að umsókn er samþykkt, er að ganga frá greiðslu skrásetningargjalds HÍ. Í Samskiptagáttinni er nú hægt að greiða gjaldið með greiðslukorti í einu lagi eða með kortaláni. Skrásetning til náms við Háskóla Íslands tekur gildi við greiðslu skrásetningargjaldsins. Skrásetningargjaldið er ekki endurkræft. Notandanafn og lykilorð fyrir samþykkta umsækjendur Nemendur við Háskóla Íslands þurfa að hafa notandanafn og lykilorð að Uglu, innra vefkerfi Háskólans. Notandanafn er jafnframt tölvupóstfang nemenda í skólanum (notandanafn@hi.is). Um leið og þú hefur greitt skrásetningargjaldið getur þú sótt notandanafn og lykilorð. Það gerirðu með því að nota netfangið þitt og lykilorðið sem þú bjóst til þegar þú skráðir þig inn í samskiptagátt Háskóla Íslands. Undir flipanum „Yfirlit umsókna“ er hægt úthluta sér notandanafni og lykilorði. Birting notandanafns og lykilorðs í Uglu varir í stuttan tíma í samskiptagáttinni og því mikilvægt að skrá niður hjá sér notandanafnið og lykilorðið þegar það birtist fyrst í gáttinni. Bíða þarf í tvær klukkustundir frá úthlutun, þar til aðgangur að kerfinu verður virkur. Ugla hefur vefslóðina ugla.hi.is. Sækja notendanafn og lykilorðATHUGIÐ: Ekki er hægt að úthluta notandanafni og lykilorði að Uglu fyrr en skrásetningargjald hefur verið greitt. Gagnlegir tenglar Nánar um umsóknarferlið, grunnnám Gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema Svona velur þú nám Námsvalshjólið- Hvaða nám hentar mér? emailfacebooklinkedintwitter
Þarfnast þessi síða lagfæringar? Var efnið hjálplegt? Var efnið hjálplegt? * Já Nei Endilega láttu okkur vita hvað má betur fara * Viltu fá svar frá okkur? Viltu fá svar frá okkur? Netfang * Svo hægt sé að hafa samband við þig. Skjáskot Settu inn skjáskot hér ef þú telur þörf á.Skrár verða að vera minni en 2 MB.Leyfðar skráartegundir: gif jpg jpeg png. CAPTCHASía fyrir ruslpóst Hvaða stafir eru á myndinni? * Skrifaðu stafina sem sjást á myndinni.