Umsókn telst ekki gild fyrr en fylgigögn hafa borist. Skilafrestur fylgigagna kemur fram í tölvupósti til umsækjenda sem berst í kjölfar umsóknar. Umsækjendur sem hafa lokið prófgráðu við HÍ eða a.m.k. 60 ECTS einingum eftir 1981 þurfa hvorki að skila inn staðfestu afriti á pappír af prófskírteini né af stúdentsprófsskírteini. Með staðfestum afritum er átt við ljósrit sem eru staðfest með stimpli í lit og með undirskrift frá viðkomandi skóla, eða öðrum til þess bærum aðila, t.d. sýslumanni. Óstaðfest eða skönnuð skírteini eru ekki gild fylgigögn. Grunnnám - nánari upplýsingar um fylgigögn Skila þarf staðfestu afriti af öllu stúdentsprófsskírteininu eins fljótt og hægt er og ekki seinna en innan tilskilins skilafrests hverju sinni. Staðfest afrit skal vera á pappírsformi, undirritað og stimplað í lit af viðkomandi skóla. Óstaðfest eða skönnuð skírteini eru ekki tekin gild. Umsækjendur sem í umsóknarferlinu veita Háskóla Íslands leyfi til að sækja rafrænt stúdentsprófsskírteini úr Innu þurfa ekki að skila staðfestu afriti. Umsókn um undanþágu frá formlegum inntökuskilyrðum (eingöngu mögulegt þegar sótt er um nám sem hefst á haustmisseri): Umsókn um undanþágu þarf að fylgja staðfest afrit á pappírsformi af námsferli umsækjandi í framhaldsskóla, ásamt starfsvottorði frá vinnuveitanda. Viðtakandi fylgigagna er: Háskóli Íslands, Nemendaskrá, Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 102 Reykjavík. Nánari upplýsingar: Nemendaskrá, 3. hæð í Háskólatorgi, s. 525 4309, netfang nemskra@hi.is. Framhaldsnám - nánari upplýsingar um fylgigögn Með umsókn um framhaldsnám þarf að skila til Háskóla Íslands staðfestum afritum á pappír af öllum prófskírteinum, ekki seinna en tveimur vikum eftir að umsóknarfresti lýkur. Óstaðfest eða skönnuð skírteini eru ekki tekin gild. Umsækjendur sem lokið hafa grunnnámi frá HÍ eftir 1981 þurfa ekki að skila afriti af prófskírteini. Bent skal á að kröfur deilda HÍ um fylgiskjöl með umsóknum eru mismunandi. Umsækjendur þurfa að afla sér upplýsinga á vefsíðu viðeigandi deildar, í kennsluskrá HÍ eða hafa samband við viðeigandi deildarskrifstofu. Viðtakandi fylgigagna er: Háskóli Íslands, Nemendaskrá, Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 102 Reykjavík. Athugið: Umsækjendur um doktorsnám eiga að skila öllum fylgigögnum til Nemendaskrár, innan þeirra tímamarka sem viðkomandi deild setur. Nánari upplýsingar veitir: Nemendaskrá HÍ, s. 525 4309, netfang nemskra@hi.is. Rafræn fylgigögn Í rafrænu umsókninni er mögulegt að umsækjandi þurfi að setja inn tiltekin fylgiskjöl á pdf formi. Þetta er nokkuð misjafnt eftir deildum og námsleiðum, en ráðlegt er að hafa slík skjöl tilbúin áður en hafist er handa við að fylla út umsóknina. Yfirlit um námsleiðir og þau fylgigögn sem þarf að skila (.xlsx) Ef rauð stjarna (*) er við fylgiskjalareit í rafrænu umsókninni er nauðsynlegt að setja þar inn pdf skjal, annars er það val umsækjandans. Ef einhver af neðantöldum reitum birtist ekki í rafrænni umsókn óskar viðkomandi deild ekki eftir þeim upplýsingum. Deildin gæti þó viljað fá upplýsingarnar með öðrum hætti. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá viðeigandi deildarskrifstofu. Upplýsingar og rafræn fylgigögn sem algengt er að óskað sé eftir í umsókn Meðmælendur Nöfn og netföng tveggja meðmælenda. Þessar upplýsingar þarf að slá inn í þar til gerða reiti í umsókninni. Heppilegt er að meðmælendur séu núverandi eða fyrrverandi kennarar í háskólanámi eða yfirmenn á vinnustað. Meðmælendur ættu ekki að vera fjölskyldumeðlimir eða nánir vinir umsækjanda. Ef óskað er eftir meðmælabréfum og/eða formum þurfa umsækjendur að hafa samband við meðmælendur og biðja um að þau verði send beint frá meðmælenda til Nemendaskrár HÍ með bréfpósti eða tölvupósti á umsokn@hi.is. Ferilskrá (CV) Skjal sem inniheldur helstu upplýsingar um náms- og starfsferil umsækjanda ásamt frekari upplýsingum sem gætu mögulega stutt umsóknina. Greinargerð Skjal sem inniheldur upplýsingar um markmið og áhugasvið umsækjanda og væntingar hans til námsins. Þar þarf m.a. að koma fram hvers vegna umsækjandi hefur valið viðkomandi námsleið og hvernig hann hyggst nýta sér námið. Lengd greinagerðar er mismunandi eftir námsleiðum, nánari upplýsingar má fá hjá viðkomandi deild. Prófskírteini/námsyfirlit Skjal sem inniheldur prófskírteini og námsferil sem meta á til inngöngu. Umsækjendur sem eru að ljúka grunnnámi þurfa að setja inn skjal sem inniheldur núverandi námsferil og staðfestingu á áætlaðri brautskráningu. Athugið að eftir sem áður þarf að senda inn staðfest afrit á pappír. Nemendur sem eru að ljúka eða hafa lokið gráðu við HÍ eftir 1981 þurfa ekki að setja neitt inn í þennan reit. Prófskírteini/námsyfirlit 2 Skjal sem inniheldur skírteini og/eða námsferla sem komust ekki í fyrri reitinn. Athugið að eftir sem áður þarf að senda inn staðfest afrit á pappír Rannsóknaráætlun Skjal sem inniheldur drög að rannsóknaráætlun. Athuga þarf hjá viðkomandi deild á hvaða formi áætlunin á að vera. Einhverjar deildir eru með sérstök eyðublöð sem þarf að fylla út og ættu þau að vera aðgengileg á heimasíðu deildar í hverju tilviki. Ýmis önnur fylgiskjöl Önnur rafræn fylgiskjöl sem stutt gætu umsóknina og falla ekki undir ofantalið. Vinsamlegast hengið aðeins pdf skjöl við umsóknina. Tengt efni Umsókn í grunnnám Umsókn í framhaldsnám emailfacebooklinkedintwitter
Þarfnast þessi síða lagfæringar? Var efnið hjálplegt? Var efnið hjálplegt? * Já Nei Endilega láttu okkur vita hvað má betur fara * Viltu fá svar frá okkur? Viltu fá svar frá okkur? Netfang * Svo hægt sé að hafa samband við þig. Skjáskot Settu inn skjáskot hér ef þú telur þörf á.Skrár verða að vera minni en 2 MB.Leyfðar skráartegundir: gif jpg jpeg png. CAPTCHASía fyrir ruslpóst Hvaða stafir eru á myndinni? * Skrifaðu stafina sem sjást á myndinni.