
Lífverkfræði
120 einingar - MS gráða
. . .
Námið er tveggja ára grunnnám í lífverkfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild. Námið er 120 einingar og telst fullgilt MS-próf.
Fyrir nemendur

Um námið
Námið er annaðhvort 90 einingar í námskeiðum og 30 eininga rannsóknarverkefni eða 60 einingar í námskeiðum og 60 eininga rannsóknarverkefni.
Námskeiðin eru meistaranámskeið sem valin eru í samráði við umsjónarkennara.
Námið veitir aðgang að doktorsnámi.
- Fyrsta háskólagráða, BS-próf, á því fagsviði sem sótt er um, með lágmarkseinkunn 6,5. Nemendur af skyldum sviðum geta fengið inngöngu að fullnægðum tilteknum forkröfum.
- Umsækjendur skulu skila stuttri greinargerð (1 bls.) þar sem þeir tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á þessu námi, markmið með náminu og hugsanlegt viðfangsefni í meistararitgerð.
- Öllum umsóknum skulu fylgja meðmæli frá 2 einstaklingum (kennari/yfirmaður) sem þekkja vel til umsækjenda og geta veitt honum skýra umsögn. Umsagnaraðilar þurfa að skila skriflegum umsögnum beint til Háskóla Íslands á netfangið umsokn@hi.is. Ef nemandi er að sækja um áframhaldandi nám í sömu deild þarf ekki að skila skriflegum umsögnum/meðmælabréfum.