
Lífupplýsingafræði
120 einingar - MS gráða
. . .
Lífupplýsingafræði er nýtt og vaxandi svið sem nýtir aðferðir úr tölvunarfræði, tölfræði og stærðfræði til að vinna úr gögnum sem til verða við rannsóknir í lífvísindum.
Námið er tveggja ára framhaldsnám við Líf- og umhverfisvísindadeild og Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild.
Fyrir nemendur

Um námið
Hlutfall námskeiða og rannsóknarverkefnis skila 120 einingum.
Val er um:
- 90 einingar í námskeiðum og 30 eininga rannsóknarverkefni
- 60 einingar í námskeiðum og 60 eininga rannsóknarverkefni
Námið veitir aðgang að doktorsnámi.
- BS-próf í náttúrufræði, tölvunarfræði, raunvísindum eða verkfræði með lágmarkseinkunn 6,5. Nemendur þurfa að taka eftirfarandi námskeið eða hafa lokið samsvarandi námskeiðum í fyrra námi sínu:
TÖL104G Stærðfræðimynstur í tölvunarfræði
TÖL101G Tölvunarfræði 1
TÖL203G Tölvunarfræði 2
LÍF109G Erfðafræði
LÍF403G Þróunarfræði
LÍF412M Sameindaerfðafræði - Umsækjendur skulu skila stuttri greinargerð (1 bls.) þar sem þeir tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á þessu námi, markmið með náminu og hugsanlegt viðfangsefni í meistararitgerð.
- Öllum umsóknum skulu fylgja meðmæli frá 2 einstaklingum (kennari/yfirmaður) sem þekkja vel til umsækjenda og geta veitt honum skýra umsögn. Umsagnaraðilar þurfa að skila skriflegum umsögnum beint til Háskóla Íslands á netfangið umsokn@hi.is. Ef nemandi er að sækja um áframhaldandi nám í sömu deild þarf ekki að skila skriflegum umsögnum/meðmælabréfum.