
Lífeindafræði
60 einingar - Viðbótardiplóma
Diplómanám í lífeindafræði er 60e eins árs fræðilegt og verklegt nám að loknu BS-námi. Námið felst rannsóknaverkefni og sérhæfðri aðferðafræði sem nemur 30e auk annarra námskeiða til 30e. Námið veitir réttindi til að starfa sem lífeindafræðingur.

Um námið
Námið felur í sér þjálfun í sjálfstæðri rannsóknavinnu og hjálpar nemendum að taka fyrstu skrefin innan vísindasamfélagsins, undir leiðsögn. Nemendur vinna sjálfstætt að verkefni, skrifa ritgerð, kynna niðurstöður sínar og verja fyrir dómnefnd.
Diplómanámið er fyrsta árið í MS-námi í lífeindafræði.
Nánar um námið í kennsluskrá HÍ.

Að námi loknu
Lífeindafræðingar eru fólkið á bak við tjöldin. Þeir vinna sýni og senda niðurstöður til lækna sem ákveða meðferð. Lífeindafræðingar eru helst sýnilegir við blóðsýnatökur en það er langt frá því það eina sem þeir fást við. Lífeindafræðingar fást meðal annars við þjónusturannsóknir, vísindarannsóknir og tækniþróun.
Dæmi um starfsvettvang:
- Heilbrigðisstofnanir
- Matvælafyrirtæki
- Lyfjafyrirtæki
- Snyrtivörufyrirtæki
- Líftæknifyrirtæki
- Stóriðnaður
- Sjálfstæðar rannsóknastofur

Félagslíf
FLOG félag lífeinda- og geislafræðinema við Háskóla Íslands er sameiginlegt nemendafélag námsbrauta í lífeindafræði og geislafræði. Félagið stendur fyrir skemmtilegum viðburðum, t.d. nýnemakvöldum, árshátíð og vísindaferðum.
Hafðu samband
Skrifstofa Námsbrauta í geislafræði og lífeindafræði
Stapa við Hringbraut 31, 101 Reykjavík
Sími: 525 5442
Netfang: gol@hi.is
Opið alla virka daga frá 9-12
